Hoppa yfir valmynd
11. janúar 2007 Innviðaráðuneytið

Samband við umheiminn er fyrir hendi

Í framhaldi af umfjöllun um viðgerð sem stendur fyrir dyrum á sæstrengnum Cantat-3 sem er í eigu erlendra aðila og möguleika á varasambandi vill samgönguráðuneytið taka eftirfarandi fram:

Hinn sæstrengurinn, Farice, sem er í eigu íslenska ríkisins, Símans, Og fjarskipta og færeyskra aðila, getur tekið við allri þeirri umferð sem fer um Cantat-3 og hafa sum fjarskiptafyrirtækin þegar samið við Farice um aukna þjónustu fyrir viðskipti sín.

Vegna umfjöllunar um RH netið má benda á að Farice getur tekið að sér þjónustu fyrir RH netið náist um það samningar.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum