Hoppa yfir valmynd
5. ágúst 2008 Innviðaráðuneytið

Forstjórastaða Keflavíkurflugvallar ohf. auglýst

Auglýst hefur verið starf forstjóra Keflavíkurflugvallar ohf. sem er ný staða sameinaðs félags Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Umsóknarfrestur er til og með 16. ágúst.


Opinbera hlutafélagið Keflavíkurflugvöllur var stofnað 26. júní í kjölfar lagasetningar Alþingis og skal félagið frá 1. janúar næstkomandi taka yfir rekstur og starfsemi Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Samgönguráðherra fer með hlut ríkisins og framkvæmd laganna og skipaði hann stjórn félagsins á stofnfundinum sem starfa skal fram að fyrsta aðalfundi þess. Í fimm manna aðalstjórn voru kjörin: Jón Gunnarsson, sem er formaður félagsins, Rannveig Guðmundsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Ellert Eiríksson og Pétur J. Eiríksson. Varamenn eru: Eysteinn Eyjólfsson, Guðlaug Finnsdóttir, Jón Norðfjörð, Björk Guðjónsdóttir og Magnea Guðmundsdóttir.

Í auglýsingu um forstjórastarfið segir meðal annars að starfs- og ábyrgðarsvið forstjóra sé fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á starfsemi sem tilheyri Keflavíkurflugvelli og dótturfélögum, eftirlit með að framfylgt sé lögum, reglugerðum, alþjóðasamningum og fyrirmælum um flugstarfsemi, uppbygging og stefnumótun, áætlanagerð, skipulags-, öryggis- og umhverfismál og innlend og erlend samskipti.

Gerðar eru kröfur til háskólamenntunar á sviði viðskipta eða um sambærilega menntun sem nýtast muni í starfinu, víðtækrar stjórnunarreynslu, framkvæmdavilja og metnaðar, framúrskarandi samskiptahæfni, samningatækni, þekkingar á fjármálum og góðrar og öruggrar framkomu.

Umsóknir skulu sendar til Hagvangs, Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík eða fylltar út á vefsíðunni hagvangur.is.

Keflavíkurflugvöllur ohf. tekur við rekstri, viðhaldi og uppbyggingu Keflavíkurflugvallar sem borgaralegs flugvallar auk hagnýtingar flugvallarsvæðisins í þágu öryggis- og varnartengdrar starfsemi svo og rekstri, viðhaldi og uppbyggingu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Félaginu er heimilt að standa að stofnun annarra félaga og fyrirtækja og gerast eignaraðili að öðrum félögum og fyrirtækjum. Þannig er félaginu heimilt að taka þátt í félagi sem ætlað væri að annast atvinnuuppbyggingu á nærsvæði flugvallarins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum