Hoppa yfir valmynd
2. apríl 2009 Innviðaráðuneytið

Hreinn Haraldsson skipaður vegamálastjóri

Kristján L. Möller samgönguráðherra hefur skipað Hrein Haraldsson vegamálastjóra. Skipað er í embættið til fimm ára.
Hreinn Haraldsson skipaður vegamálastjóri
Kristján L. Möller samgöngu-ráðherra hefur skipað Hrein Haraldsson vegamálastjóra.

Embætti vegamálastjóra var auglýst laust til umsóknar í byrjun mars og rann umsóknarfrestur út 23. mars. Hreinn var eini umsækjandinn. Samgönguráðherra afhenti Hreini skipunarbréf í dag á skrifstofu ráðuneytisins.

Vegamálastjóri veitir Vegagerðinni forstöðu. Helstu verkefni Vegagerðarinnar skiptast í framkvæmdir í vegamálum, umsjón með rannsóknum og þróun á sviði vegamála auk stjórnsýslu og eftirlits.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum