Hoppa yfir valmynd
11. nóvember 2010 Innviðaráðuneytið

Aðstaða til innanlandsflugs verði bætt vestan við Reykjavíkurflugvöll

Borgarstjóri og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra ræddu málefni samgöngumiðstöðvar við Reykjavíkurflugvöll á fundi sínum í gær. Ákveðið var að bæta aðstöðu til innanlandsflugs vestan við flugvöllinn og hverfa frá hugmyndum um byggingu samgöngumiðstöðvar.

Frá Reykjavíkurflugvelli.
Frá Reykjavíkurflugvelli.

Ögmundur Jónasson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Jón Gnarr borgarstjóri ræddust við ásamt aðstoðarmönnum sínum og helstu samstarfsmönnum. Fóru þeir vítt og breitt yfir skipulagsmál flugvallarins og hvaða kostir væru mögulegir til að bæta aðstöðu vegna innanlandsflugsins. Brýnt þykir að bæta aðstöðuna bæði farþega og þeirra fyrirtækja og starfsmanna sem sinna eða sinna vilja innanlandsflugi um Reykjavíkurflugvöll.

Varð niðurstaða ráðherra og borgarstjóra sú að kanna þessa leið nánar á svæðinu vestan við flugvöllinn á þeirri lóð sem afgreiðsla Flugfélags Íslands stendur nú. Þykir hún fýsilegri miðað við efnahagsaðstæður frekar en að reisa samgöngumiðstöð austan við flugvöllinn sem yrði einnig afgreiðsla fyrir rútur, strætisvagna og leigubíla. Ljóst er að auk byggingarinnar sjálfrar myndi fylgja henni umtalsverður kostnaður til dæmis við að malbika ný flughlöð og ný bílastæði við miðstöðina.

Hugmynd um samgöngumiðstöð við Reykjavíkurflugvöll hefur verið til umræðu í rúm fimm ár og verið til meðferðar bæði hjá borgaryfirvöldum og samgönguyfirvöldum. Til skoðunar hafa komið ýmsir kostir, bæði austan og vestan við flugvöllinn og hefur nú verið ákveðin sú leið sem að framan getur. Ráðherra og borgarstjóri samþykktu að vinna þessari leið frekara brautargengi á næstu vikum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum