Hoppa yfir valmynd
24. maí 2018 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Kynningarfundur vegna vinnu nefndar um miðhálendisþjóðgarð

Ferðamenn á Brennisteinsöldu - myndHugi Ólafsson
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið boðar til opins fundar vegna vinnu þverpólitískrar nefndar um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Á fundinum verða verkefni og verklag nefndarinnar kynnt.

Nefndina eru skipuð af umhverfis og auðlindaráðherra en í henni eiga sæti fulltrúar allra þingflokka á Alþingi auk tveggja fulltrúa sveitarfélaga. Þá sitja fulltrúar frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu í nefndinni.

Á fundinum verður farið yfir verklag nefndarinnar og hvernig samráði við almenning og haghafa verður háttað meðan á vinnu hennar stendur.

Allir eru velkomnir á fundinn.

Fundurinn verður haldinn mánudaginn 4. júní kl. 16:30 – 17:00 í fyrirlestrarsal (1. hæð) atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, Skúlagötu 4.

Nánari upplýsingar um starf nefndarinnar má finna á vefslóðinni www.stjornarradid.is/midhalendid

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum