Hoppa yfir valmynd
21. júní 2018 Innviðaráðuneytið

Samgönguþing hefst kl. 13 í dag – útsending á vefnum

Á annað hundrað manns eru skráðir til þátttöku á samgönguþingi sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og samgönguráð boða til á Hótel Sögu kl. 13-16.30 í dag. Hægt verður að fylgjast með streymi frá þinginu hér á vefnum.

Á þinginu verður fjallað um stöðu og helstu áherslur í samgönguáætlun 2019-2033, framkvæmdir og fjármögnun, almenningssamgöngur, umferðaröryggi og hlutverk upplýsingatækninnar í framtíðarsamgöngum. Frummælendur fjalla um hvert málefni og í kjölfarið verða umræður með þátttöku sérfræðinga á viðkomandi sviði, ásamt fyrirspurnum úr sal.

Samgönguráð hefur yfirumsjón með gerð tillagna að samgönguáætlun. Í lögum um samgönguáætlun, nr. 33/2008, segir að ráðið skuli minnst einu sinni við gerð nýrrar samgönguáætlunar standa fyrir samgönguþingi sem ætlað sé að veita ráðgjöf og leiðbeiningar við gerð samgönguáætlunar. Samgönguáætlun 2019-2033 verður lögð fyrir Alþingi í haust.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum