Hoppa yfir valmynd
17. október 2018 Matvælaráðuneytið

Samningur um samstarf á milli Íslands og Kína á sviði einkaleyfa og vörumerkja

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra undirritaði í dag samstarfssamning (MOU) á milli íslenskra og kínverskra stjórnvalda um samstarf og samvinnu á sviði hugverkaréttinda (einkaleyfa og vörumerkja). Byggir samningurinn á fyrra samkomulagi milli landanna frá 2012 um sama efni og er uppfærsla á honum. Fyrir hönd kínverskra stjórnvalda undirritaði samninginn Liu Junchen, vararáðherra hugverka- og neytendamála. Á fundi ráðherranna kom fram að íslensk fyrirtæki eru í auknu mæli að sækja um einkaleyfi og vernd vörumerkja í Kína og er eitt af markmiðum samstarfssamningsins að liðka fyrir því og hvetja til þess. Að sama skapi hefur verið aukning í umsóknum kínverskra fyrirtækja hér á landi til Einkaleyfastofunnar. Er samstarfssamningnum ætlað að mynda ramma um samvinnu og upplýsingaflæði milli þjóðanna, tengt hugverkaréttindum. Á fundi ráðherranna var einnig rætt samstarf þjóðanna á sviði neytendaverndar og til stendur að ganga frá samstarfssamningi um þau mál síðar í vetur.

 

Heimsmarkmiðin

9. Nýsköpun og uppbygging

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum