Hoppa yfir valmynd
8. nóvember 2018 Utanríkisráðuneytið

Samkomulag við millilandaráð Viðskiptaráðs undirritað

Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, Baldvin Björn Haraldsson, formaður stjórnar millilandaráðanna og Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir, framkvæmdastjóri millilandaráðanna skrifa undir samkomulagið - myndViðskiptaráð
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra undirritaði í dag samkomulag við alþjóðlegu viðskiptaráðin, sem starfa innan vébanda Viðskiptaráðs Íslands, um að efla áralangt samstarf þessara aðila á sviði utanríkisviðskipta. 

Alþjóðlegu viðskiptaráðin eru Amerísk-íslenska, Bresk-íslenska, Dansk-íslenska, Fransk-íslenska, Færeysk-íslenska, Grænlensk-íslenska, Ítalsk-íslenska, Japansk-íslenska, Norsk-íslenska, Spænsk-íslenska, Sænsk-íslenska, Þýsk-íslenska og Norðurslóðaviðskiptaráðið.

„Frá því að ég tók við embætti utanríkisráðherra hef ég lagt sérstaka áherslu á að efla utanríkisviðskipti og þetta samkomulag er mér því mikið fagnaðarefni. Ég er ekki í vafa um að nánara samstarf utanríkisráðuneytisins og millilandaráðanna eigi eftir að verða íslensku atvinnulífi til verulegra hagsbóta,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra að undirritun lokinni.  

Markmiðin með samkomulaginu eru meðal annars að vinna sameiginlega að hagsmunum atvinnulífsins, svo og að viðskiptasendinefndum, á ofangreindum mörkuðum, að nýskipaðir sendiherrar eigi fund með stjórn viðkomandi millilandaráðs áður en starf hefst á erlendri grundu og eigi svo saman árlegan fund eftir það. Þá er stefnt að því að ráðherra eigi árlegan fund með formönnum allra millilandaráðanna og unnið verði sameiginlega að árlegri ráðstefnu þar sem athygli er vakin á alþjóðlegum málefnum.

„Það er fagnaðarefni að við formgerum loks það samstarf sem við höfum átt við utanríkisráðuneytið til fjölda ára með þessum samningi. Innan stjórna millilandaráðanna starfa yfir 130 forsvarsaðilar í fyrirtækjarekstri víðsvegar um heiminn með það að markmiði að rækta og efla milliríkjaviðskipti landsins,“ segir Baldvin Björn Haraldsson, formaður stjórnar millilandaráðanna.

„Alþjóðaviðskipti og efling þeirra er hagsmunamál okkar allra en 13 alþjóðleg viðskiptaráð starfa innan vébanda Viðskiptaráðs Íslands og erum við stolt af aðkomu okkar og stuðningi í þessu samhengi,“ segir Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands

Aðilar samkomulagsins stefna ennfremur að því að efla enn frekar samskipti og samvinnu sín á milli á markaðssvæði hvers millilandaráðs, auk þess að eiga í heildarsamstarfi eins og að ofan greinir, allt með það að leiðarljósi að auka útflutningsviðskipti Íslands og gjaldeyrisöflun.
 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum