Hoppa yfir valmynd
4. júní 2019 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Markviss uppbygging innviða vegna orkuskipta í samgöngum

Þrír ráðherrar kynntu áform um uppbyggingu innviða vegna orkuskipta á blaðamannafundi í dag.  - myndKristinn Magnússon

Hraðhleðslustöðvum við þjóðveginn verður fjölgað verulega og blásið verður til átaks með ferðaþjónustunni til að stuðla að orkuskiptum hjá bílaleigum, sem hafa víðtæk áhrif á samsetningu bílaflota landsmanna. Þetta kom fram á blaðamannafundi þriggja ráðherra ríkisstjórnarinnar þar sem kynnt voru næstu skref varðandi orkuskipti í samgöngum á Íslandi.

Verkefnin byggja á tillögum starfshóps sem umhverfis- og auðlindaráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra skipuðu í byrjun árs og var falið að móta tillögur um aðgerðir til að hraða orkuskiptum hér á landi, í samræmi við aðgerðaáætlanir um loftslagsmál og orkuskipti.

Tilkynnt var í dag um ráðstöfun 450 milljóna króna vegna orkuskipta í samgöngum á árunum 2019-2020 en samkvæmt fjármálaáætlun er áætlað að verja 1,5 milljarði króna til orkuskipta á fimm ára tímabili.

Þriðjungur þeirrar losunar gróðurhúsalofttegunda sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda kemur frá vegasamgöngum. Stærsta einstaka aðgerðin sem mögulegt er að ráðast í til að mæta skuldbindingum Íslands er því að draga úr þessari losun – með breyttum ferðavenjum og orkuskiptum í vegasamgöngum. Rafvæðing fólksbílaflotans mun skila mestu í orkuskiptunum en gert er ráð fyrir að hún geti skilað allt að 250.000 tonna árlegum samdrætti í losun.

Helstu aðgerðir varðandi orkuskipti:

Hindrunarlausar ferðir rafbíla milli landshluta

  • Rafbílum fjölgar hratt hér á landi og Ísland er nú í öðru sæti í heiminum á eftir Noregi hvað varðar hlutfall rafbíla af fjölda nýskráðra bifreiða. Mikilvægt er að koma í veg fyrir að flöskuhálsar myndist á fjölförnum stöðum og tryggja hindrunarlausar ferðir milli landshluta. Kallað verður eftir umsóknum um fjárfestingarstyrki til uppbyggingar hraðhleðslustöðva á lykilstöðum við þjóðvegi landsins, með áherslu á næstu kynslóð hleðslustöðva sem bjóða upp á mun styttri hleðslutíma en núverandi stöðvar gera.
  • Til úthlutunar til þessa verkefnis eru samtals 200 milljónir króna og hefur Orkusjóði verið falið að sjá um úthlutun styrkja til átaksverkefnisins. Vegna mótframlags umsækjenda má áætla að heildarupphæð uppbyggingarinnar verði að lágmarki 400 milljónir króna. 

Hleðslumöguleikar við gististaði – eftirmarkaður rafbíla

  • Ráðist verður í átaksverkefni um að fjölga hleðslumöguleikum við gististaði vítt og breitt um landið. Með því er liðkað fyrir orkuskiptum hjá bílaleigum en áhrif innkaupa bílaleiga á samsetningu bílaflotans hér á landi eru veruleg þar sem bílaleigubílar eru tæpur helmingur allra nýskráðra bifreiða á Íslandi.
  • Áhrifin á losun gróðurhúsalofttegunda eru tvíþætt: Annars vegar vegna aksturs ferðamanna sem er að minnsta kosti fjórðungur af öllum einkaakstri á landinu og hins vegar þegar fyrrverandi bílaleigubílar verða að heimilisbílum landsmanna á eftirmarkaði.
  • Gististöðum og hótelum um land allt býðst að sækja um fjárfestingarstyrki í gegnum Orkusjóð til að setja upp hleðslustöðvar svo gestir geti hlaðið þar rafbíla yfir nótt. Til úthlutunar eru samtals 50 milljónir króna. Vegna mótframlags umsækjenda má áætla að heildarfjárhæðin verði að lágmarki 100 milljónir króna og hleðslustöðvum við gististaði fjölgi um allt að 500 vegna þessa.
  • Verkefnið verður unnið í samstarfi við Samtök ferðaþjónustunnar.

Almennar aðgerðir og aðrir orkugjafar

  • Hafinn er undirbúningur í félagsmálaráðuneytinu að því að breyta lögum um fjöleignarhús með það að leiðarljósi að liðka fyrir rafbílavæðingu.
  • Auk ofangreindra verkefna hefur starfshópurinn sett fram áherslur varðandi orkuskipti í almenningssamgöngum og afgreiðslu á metani, vetni og innlendu íblöndunareldsneyti, auk rafvæðingar hafna. Leitað hefur verið til Grænu orkunnar um að móta frekari tillögur þar að lútandi sem gert verður í samráði við hlutaðeigandi haghafa og fagaðila.

Þá verður 200 milljónum króna varið til margvíslegra verkefna í orkuskiptum á árinu 2020, byggt á frekari greiningum.

Orkuskiptin gangi hratt fyrir sig

„Við verðum að gjörbreyta ferðavenjum okkar og skipta út mengandi jarðefnaeldsneyti fyrir umhverfisvæna orkugjafa. Ísland er nú í öðru sæti hvað varðar nýskráningar rafbíla og þær aðgerðir sem hér eru kynntar skipta verulegu máli til að tryggja að orkuskipti hér á landi gangi hratt og örugglega fyrir sig. Við höfum allt sem þarf til að vera í fararbroddi í heiminum í orkuskiptum í samgöngum,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.

„Í dag kynnum við aðgerðir um áframhaldandi átak í orkuskiptum og markvissa uppbyggingu innviða. Meðal annars er lögð sérstök áhersla á orkuskipti í ferðaþjónustu í samstarfi við Samtök ferðaþjónustunnar. Í því felast fjölmörg tækifæri og við eigum að stuðla að því að ferðamenn geti ferðast um landið með umhverfisvænum hætti,“ segir Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

„Með rafbílavæðingu nýtum við hreina og ódýra innlenda orku í stað mengandi innflutts eldsneytis. Það skiptir máli að fólki standi til boða að reka og hlaða rafbíl, óháð búsetu. Ég fagna markvissri uppbyggingu um allt land, sem styður við þá þróun,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

 Formaður starfshópsins var Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs en auk hans sátu í hópnum fulltrúar úr atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu, umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og fjármálaráðuneytinu. Hópnum var einungis ætlað að taka fyrir orkuskipti í samgöngum en ekki breyttar ferðavenjur fólks og eflingu almenningssamgangna en unnið er að því annars staðar í stjórnkerfinu.

 

Innviðir fyrir orkuskipti - Tillögur starfshóps um aðgerðir

Glærukynning frá blaðamannafundi

Auglýsing Orkusjóðs um styrki til uppbyggingar á hraðhleðslustöðvum fyrir rafbíla

Auglýsing Orkusjóðs um styrki til uppbyggingar hleðslustöðva fyrir rafbíla við gististaði

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum