Hoppa yfir valmynd
11. október 2019 Innviðaráðuneytið

Löggjöf nágrannaríkja um mat á umhverfisáhrifum skoðuð

Samanburður á löggjöf nágrannaríkja Íslands um mat á umhverfisáhrifum gefur til kynna að tækifæri séu fólgin í nokkurri einföldun á löggjöfinni hér á landi. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar skýrslu um rannsókn á löggjöf nokkurra nágrannaþjóða Íslands um mat á umhverfisáhrifum.

Rannsóknina vann Aagot Vigdís Óskarsdóttir lögfræðingur fyrir umhverfis- og auðlindaráðuneytið til undirbúnings heildarendurskoðun laga um mat á umhverfisáhrifum sem nú stendur yfir. Markmið endurskoðunarinnar er að auka skilvirkni í ákvarðanatöku við mat á umhverfisáhrifum og að tryggja sem best aðkomu almennings og annarra hagsmunaaðila að ferlinu.

Þau lönd sem skýrslan fjallar um auk Íslands eru Danmörk, Finnland, Noregur, Svíþjóð og Skotland en löggjöf þeirra landa um mat á umhverfisáhrifum byggir öll á tilskipunum Evrópusambandsins. Greindir voru ákveðnir þættir í löggjöf ríkjanna sem varða umrætt ferli og dregnir fram kostir hennar og gallar. Niðurstöður skýrslunnar eru m.a. að framsetning laga samanburðarríkjanna er varðar mat á umhverfisáhrifum er einfaldari og aðgengilegri en á Íslandi. Ferli mats á umhverfisáhrifum er flóknara á Íslandi en hjá samanburðarlöndunum og einnig er athyglisvert hvað tímafrestir stjórnvalda á Íslandi í ferli mats á umhverfisáhrifum eru mun styttri en hjá samanburðarríkjunum.

Skýrslan nýtist m.a. við vinnu starfshóps sem umhverfis- og auðlindaráðherra skipaði í byrjun ársins til að vinna að heildarendurskoðun laga um mat á umhverfisáhrifum.

Samanburður á löggjöf nokkurra nágrannaþjóða um mat á umhverfisáhrifum – Rannsókn gerð til undirbúnings heildarendurskoðun laga um mat á umhverfisáhrifum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum