Hoppa yfir valmynd
17. janúar 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Opinn kynningarfundur í Reykjavík á morgun um Hálendisþjóðgarð

Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, kynnir áform um stofnun Hálendisþjóðgarðs á opnum fundi í Reykjavík á morgun, laugardaginn 18. janúar klukkan 11:00. Fundurinn fer fram í Skriðu, í húsakynnum Háskóla Íslands í Stakkahlíð og í verður í beinu streymi á vef Stjórnarráðsins.

Á fundinum mun ráðherra m.a. fara yfir forsendur og markmið með stofnun Hálendisþjóðgarðs og kynna helstu atriði frumvarps þar að lútandi, sem nú er til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda.

Fundurinn er öllum opinn – verið velkomin.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum