Hoppa yfir valmynd
17. febrúar 2020 Dómsmálaráðuneytið

Dómnefnd um hæfni dómara skilar umsögn

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni um umsækjendur um setningu tveggja embætta dómara við Landsrétt sem auglýst voru laus til umsóknar 20. desember 2019. Umsóknarfrestur var til 6. janúar 2020. Alls bárust 8 umsóknir um embættin en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.

Niðurstaða dómnefndar er að Ása Ólafsdóttir, prófessor, sé hæfust umsækjenda til að hljóta setningu í embætti dómara við Landsrétt. Næst henni koma, jafnsett, Ástráður Haraldsson og Sandra Baldvinsdóttir, bæði héraðsdómarar.

Dómnefndina skipuðu: Ingimundur Einarsson, formaður, Óskar Sigurðsson, Ragnheiður Harðardóttir, Ragnhildur Helgadóttir og Reimar Pétursson.

Hér er að finna umsögn dómnefndar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum