Hoppa yfir valmynd
29. júlí 2020 Dómsmálaráðuneytið

Átta sóttu um tvö laus embætti dómara við Hæstarétt Íslands

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Þann 10. júlí sl. auglýsti dómsmálaráðuneytið laus til umsóknar tvö embætti dómara við Hæstarétt Íslands og rann umsóknarfrestur út þann 27. júlí 2020.

Umsækjendur um embættin eru: 

  1. Aðalsteinn E. Jónasson, dómari við Landsrétt
  2. Ása Ólafsdóttir, prófessor
  3. Ástríður Grímsdóttir, héraðsdómari
  4. Björg Thorarensen, prófessor
  5. Davíð Þór Björgvinsson, dómari við Landsrétt
  6. Jóhannes Rúnar Jóhannsson, lögmaður
  7. Oddný Mjöll Arnardóttir, dómari við Landsrétt
  8. Þorgeir Ingi Njálsson, dómari við Landsrétt.

Skipað verður í embættin hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum. 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum