Hoppa yfir valmynd
15. september 2020 Innviðaráðuneytið

Loftbrú fer vel af stað

Loftbrú veitir 40% afslátt af innanlandsflugi fyrir íbúa landsbyggðarinnar. - mynd

Á áttunda hundrað flugleggir hafa verið bókaðir með afsláttarkóða Loftbrúar síðan verkefninu var hleypt af stokkunum 9. september sl. samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Samtals hefur Loftbrú sparað íbúum landsbyggðarinnar tæpar fimm milljónir króna. Algengustu flugleiðirnar sem bókaðar hafa verið eru frá Akureyri til Reykjavíkur og frá Egilsstöðum til Reykjavíkur.

Loftbrú veitir 40% afslátt til þeirra sem eiga lögheimili á landsbyggðinni fjarri höfuðborgarsvæðinu og á eyjum án vegasambands. Undir Loftbrú falla Vestfirðir, hluti af Norðurlandi vestra, Norðurland eystra, Austurland, Hornafjörður og Vestmannaeyjar. Svæðið er afmarkað með tilliti til póstnúmera. Alls ná afsláttarkjör Loftbrúar til rúmlega 60 þúsund íbúa á þessum svæðum.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, opnaði Loftbrú á kynningarfundi á Egilsstaðaflugvelli 9. september. Markmiðið með verkefninu er að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að miðlægri þjónustu og efla byggðir með því að gera innanlandsflug að hagkvæmari samgöngukosti.

Á þeirri tæpu viku sem liðin er hafa á áttunda hundrað flugleggir verið bókaðir með afsláttarkóða Loftbrúar. Á tímabilinu nema framlög ríkisins með þessum flugleggjum samtals 4.951.981 kr.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum