Hoppa yfir valmynd
21. september 2020 Innviðaráðuneytið

Flugsamgöngur til Boston tryggðar út nóvember

Frá Keflavíkurflugvelli. - myndÞórmundur Jónatansson

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur framlengt samning við Icelandair um að tryggja lágmarksflug til Bandaríkjanna út nóvember. Samningurinn gerir ráð fyrir að flogið verði minnst tvisvar í viku til Boston á tímabilinu. 

Samningur við Icelandair um að tryggja millilandaflug til Bandaríkjanna með flugi til Boston hefur tvívegis verið framlengdur í sumar, nú síðast til og með 19. september. Nýr viðauki gildir til og með 30. nóvember. Allar tekjur Icelandair af flugi til Boston munu lækka greiðslur vegna samningsins.

Markmiðið er sem fyrr að tryggja lágmarks flugsamgöngur til og frá landinu vegna þess ástands sem skapast hefur vegna Covid-19 faraldursins. Það voru Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sem undirrituðu samninginn um helgina með rafrænum hætti.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum