Hoppa yfir valmynd
10. febrúar 2021 Innviðaráðuneytið

Frumvarp í samráðsgátt um gestaflutninga og skilvirkari lausnir við greiðslu fargjalda

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til að skila inn umsögn er til og með 18. febrúar nk.

Tilgangur frumvarpsins er einkum tvíþættur. Annars vegar að festa í lög skýrari skilgreiningu á tímabundnum farþegaflutningum (gestaflutningum) sem flutningafyrirtæki starfrækja hér á landi. Hins vegar að opna fyrir og styðja við skilvirkari leiðir við greiðslu fargjalda í almenningssamgöngum og veita skýrar heimildir um eftirlit og viðurlög með það að markmiði að efla þjónustu við notendur.

Tíu daga heimild fyrir gestaflutninga

Flutningafyrirtæki sem starfa innan EES hafa leyfi til að stunda farþegaflutninga hér á landi tímabundið samkvæmt reglugerð ESB sem innleidd hefur verið í íslenskan rétt. Á grundvelli þessarar heimildar hafa erlend flutningafyrirtæki stundað slíka gestaflutninga hér á landi með ferðamenn.

Með frumvarpinu er lagt til að bætt verði við lögin skilgreiningu á tímabundnum gestaflutningum en slíka skilgreiningu er hvorki að finna í fyrrnefndri reglugerð ESB, né íslenskum lögum. Skilgreiningin sem lögð er til felur í sér að þá megi að hámarki stunda í allt að 10 samfellda daga í hverjum almanaksmánuði. Þá verður bætt við lögin ákvæðum um eftirlit með tímabundnum gestaflutningum og um viðurlög við brotum gegn þeim reglum sem um slíka flutninga gilda.

Greiðsla fargjalda gerð skilvirkari

Greiðsla fargjalda í almenningssamgöngum hefur í auknum mæli færst frá því að farþegar greiði fargjald hjá vagnstjóra yfir í fyrirframgreidd kort eða rafrænar lausnir. Eftirlit með því að fargjöld hafi verið greidd er hins vegar enn að mestu í höndum vagnstjóra þegar farþegi stígur um borð. 

Frumvarpinu er ætlað að opna fyrir og styðja við skilvirkari leiðir við greiðslu fargjalda Markmiðið er farþegar geti stigið inn í vagna um hvaða dyr sem er og þurfi ekki að sýna vagnstjóra fram á greiðslu fargjalds. Slíkt fyrirkomulag væri til þess fallið að efla þjónustu við farþega, stytta biðtíma á biðstöðvum og auka skilvirkni.
Jafnframt verður kveðið með skýrum hætti á um skyldu farþegar til að framvísa gildum farmiða og rétt flutningsaðila til að sannreyna að fargjald hafi verið greitt. Með nýjum ákvæðum um fyrirkomulag og eftirlit mætti taka upp nýtt eftirlit þar sem eftirlitsmenn sannreyna greiðslu farþega með slembiúrtaki. Slíkt fyrirkomulag er við lýði víða hvar í nágrannalöndunum. Heimild verður veitt til að sekta farþega sem ekki geta sýnt fram á greiðslu fargjalds og skýr ákvæði um endurskoðun slíkra ákvarðana.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum