Hoppa yfir valmynd
5. mars 2021 Innviðaráðuneytið

Morgunfundur um öryggi smáfarartækja í umferðinni

Á Laugavegi - myndÞórmundur Jónatansson

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og umferðaröryggisráð standa fyrir opnum veffundi þriðjudaginn 23. mars kl. 8:30-9:45 um fjölbreytta ferðamáta og öryggi léttra bifhjóla, rafhlaupahjóla og annarra smáfarartækja í umferðinni.

Það er stefna stjórnvalda að styðja við fjölbreytta ferðamáta, sérstaklega í þéttbýli til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum. Á fjölbreyttri dagskrá fundarins verður sjónum einkum beint að örflæði (e. micromobility), þ.e. ýmsum smáfarartækjum í umferðinni, innviðum fyrir þau og öryggismálum sem þeim tengjast. 

Fundurinn er öllum opinn en gestir eru beðnir um að skrá þátttöku á skráningarsíðu fundarins. Allir sem skrá sig fá hlekk á veffundinn. 

Dagskrá

  • Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
    Opnunarávarp
  • Höskuldur Kröyer, ráðgjafi hjá Trafkon
    Smáfarartæki og umferðaröryggi
  • Katrín Halldórsdóttir, verkfræðingur á Höfuðborgarsvæði Vegagerðarinnar
    Innviðir fyrir smáfarartæki  
  • Hjalti Már Björnsson, yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítala 
    Rafhlaupahjól, slys og heilsufarslegur ávinningur
  • Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, deildarstjóri samgangna hjá Reykjavíkurborg
    Rafhlaupahjólaleigur  
  • Samgöngustofa 
    Frumsýning á nýjum fræðslumyndum um rafhlaupahjól og létt bifhjól í flokki 1

Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri og formaður umferðaröryggisráðs.

  • Dagskrá morgunfundar um öryggi smáfarartækja í umferðinni - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum