Hoppa yfir valmynd
2. september 2021 Innviðaráðuneytið

Leiðir styttast með nýjum og endurbættum Reykjavegi

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, opnar nýjan Reykjaveg ásamt Bergþóru Þorkelsdóttur, forstjóra Vegagerðarinnar. - mynd

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, opnuðu í dag nýjan og endurbættan Reykjaveg í Bláskógabyggð. Nýr vegur styttir leiðina milli Laugarvatns og Reykholts um 4 km og leysir af hólmi gamlan malarveg og einbreiða brú yfir ána Fullsæl, sem byggð var árið 1962. 

„Markmiðið með nýjum vegi er að stytta vegalengdir og efla samgöngur fyrir íbúa og ferðafólk í uppsveitum Árnessýslu, en ekki síður að auka umferðaröryggi með því að leggja veg með bundnu slitlagi sem uppfyllir nútíma hönnunar- og öryggiskröfur. Þá er nýjum vegi ætlað að bæta aðgengi ferðamanna og sumarhúsagesta að vinsælum áningar- og ferðamannastöðum á svæðinu. Ég óska íbúum á svæðinu og landsmönnum öllum til hamingju með nýjan veg,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við opnunina.

Vegurinn gegnir þýðingarmiklu hlutverki en stysta leiðin milli þéttbýliskjarna er um Reykjaveg, þ.e.a.s. milli Laugarvatns og Reykholts. Einnig styttist leið að fjölförnum sumarhúsabyggðum á svæðinu. Vegurinn er um 8 km langur og liggur á milli Biskupstungnabrautar (35) rétt neðan Reykholts og Laugarvatnsvegar (37) ofan Brúarár.

  • Ella Sóley Gretarsdóttir aðstoðaði Bergþóru Þorkelsdóttur, forstjóra Vegagerðarinnar, og Sigurð Inga Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við athöfnina. - mynd
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, að lokinni borðaklippingu. - mynd
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, að lokinni borðaklippingu. - mynd
  • Ari Trausti Guðmundsson, alþingismaður, og Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri. - mynd
  • Gestir við opnunarathöfn Vegagerðarinnar. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum