Hoppa yfir valmynd
5. október 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Breytingar á heilbrigðiseftirliti Mosfellsbæjar, Seltjarnarnesbæjar og Kjósahrepps

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um sameiningu heilbrigðiseftirlits Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar við Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæði annars vegar og hins vegar sameiningu heilbrigðiseftirlits Kjósahrepps við Vesturlandssvæði. Reglugerðin varðar Garðabæ, Hafnarfjörð, Kópavog, Seltjarnarnes, Mosfellsbæ, Kjósarhrepp og sveitarfélögin á Vesturlandi.

Reglugerðin er sett á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir sem kveða á um að landinu skuli skipt upp í eftirlitssvæði. Heilbrigðiseftirlitssvæðin hafa verið tíu, en við setningu reglugerðarinnar fækkar svæðunum í níu. Breytingar þessar voru unnar í samvinnu við viðkomandi sveitarfélög.

Reglugerð um sameiningu annars vegar heilbrigðiseftirlits Mosfellsbæjar og Seltjarnarnesbæjar við Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæði og hins vegar sameiningu heilbrigðiseftirlits Kjósarhrepps við Vesturlandssvæði

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum