Hoppa yfir valmynd
10. desember 2021 Innviðaráðuneytið

Góð þjálfun ökumanna grundvöllur fyrir umferðaröryggi

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, við útskrift ökukennara en Endurmenntun Háskóla Íslands sér um ökukennaranám  í samstarfi við Samgöngustofu og Menntavísindasvið HÍ. - mynd

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, flutti hátíðarræðu við athöfn hjá Endurmenntun Háskóla Íslands þegar 30 nemendur voru útskrifaðir úr ökukennaranámi. Endurmenntun hefur séð um námið í samstarfi við Samgöngustofu og Menntavísindasvið HÍ frá árinu 2017.

Í ræðu sinni óskaði Sigurður Ingi nýjum ökukennurum velfarnaðar, en þeir hafi nú fengið nauðsynlegt veganesti til að undirbúa ökumenn framtíðarinnar undir krefjandi aðstæður við akstur. „Góð þjálfun ökumanna er grundvallaratriði varðandi umferðaröryggi og að draga úr hættu á slysum í umferðinni,“ sagði ráðherra. „Góð ökukennsla veitir nemanda sjálfsöryggi og þá þekkingu sem til þarf. Þjálfun undir öflugri leiðsögn og góðu eftirliti getur þannig skilið á milli góðs ökumanns og þess sem kann að valda sjálfum sér eða öðrum hættu á vegum úti.“

Umferðarfræðsla í æsku

Sigurður Ingi sagði umferðarfræðslu á barnsaldri afskaplega þýðingarmikla. „Foreldrar, leikskólar og skólar barna okkar leika stórt hlutverk við að kenna umferðarreglurnar. Öflugt og vel menntað fagfólk taki svo við kennslunni þegar undirbúningur fyrir ökupróf hefst.“

Ökukennsla og löggilding ökukennara hófst fljótt eftir að bifreiðaumferð hófst af alvöru á Íslandi. Kröfu um sérstakt próf fyrir bifreiðastjóra komið á með reglugerð árið 1915 og samhliða því krafa um löggildingu ökukennara. Fyrstu ökuskírteinin voru gefin út sama ár og einnig fyrsta löggilding til handa ökukennara.

Stafræn framtíð ökunáms

Sigurður Ingi sagði að unnið væri að því að gera umgjörð fyrir almennt ökunám stafræna frá upphafi til enda. Verkefnið væri í fullum gangi en umsókn um fullnaðarskírteini væri þegar orðin stafræn og hægt að sækja um hana á Ísland.is. Ráðherra sagði einnig að ökukennarar gætu líka gengið frá akstursmati með stafrænum hætti, en það er forsenda þess að geta fengið fullnaðarskírteini.

Á næsta ári væri stefnt að því að umsókn um bráðabirgðaskírteini yrði stafræn og í framhaldi af því umsókn um aukin ökuréttindi, bifhjólaréttindi og fleira. Þá verði ökunámsbókin gerð stafræn á næsta ári sem spari vinnu og fyrirhöfn. Prófanir væru þegar hafnar hjá Samgöngustofu. Ökunemar þurfi því ekki lengur að taka bókina með sér og passa upp á hana. 

„Með því að gera umgjörð ökunáms stafræna bætum við þjónustu við nokkur þúsund ökunema á hverju ári. Það er tímabært að ökunámið verði markvissara og umhverfisvænna í takt við nútímatækni,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra í ræðu sinni.

Samgöngustofa stýrir verkefnum um stafræna umgjörð ökunáms í samvinnu við ráðuneytið, ríkislögreglustjóra og sýslumannsembætti. Stafrænt Ísland hefur yfirumsjón með þróun tæknilausna til að stafrænt ökunámsferli geti orðið að veruleika.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum