Hoppa yfir valmynd
20. desember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Dómnefnd um hæfni skilar umsögn um umsækjendur um tvö embætti héraðsdómara

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn sinni um umsækjendur um skipun í tvö embætti héraðsdómara, sem auglýst voru laus til umsóknar þann 15. október 2021. Annars vegar er um að ræða embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og hins vegar embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Suðurlands. Samtals bárust tíu umsóknir en tveir umsækjenda sóttu einungis um síðarnefnda embættið.
Niðurstaða dómnefndar er sú að Einar Karl Hallvarðsson, ríkislögmaður, sé hæfastur umsækjenda til að hljóta skipun í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Suðurlands. Það er jafnframt niðurstaða dómnefndar að Nanna Magnadóttir formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, og Þorsteinn Magnússon, framkvæmdastjóri óbyggðanefndar, séu hæfust umsækjenda til að hljóta skipun í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur, og verði ekki gert upp á milli þeirra tveggja.
Dómnefndina skipuðu: Eiríkur Tómasson, formaður, Kristín Benediktsdóttir, Óskar Sigurðsson, Sigríður Þorgeirsdóttir og Þorgeir Örlygsson.

Umsögn dómnefndar


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum