Hoppa yfir valmynd
30. desember 2021 Innviðaráðuneytið

Skýrsla starfshóps um öryggi lendingarstaða birt

Skýrsla starfshóps um öryggi lendingarstaða hefur verið birt á vef Stjórnarráðsins. Verkefnið var skilgreint í flugstefnu í núgildandi samgönguáætlun 2020-2034 sem Alþingi samþykkti sumarið 2020. Niðurstöður og tillögur skýrslunnar munu nýtast vel við endurskoðun samgönguáætlunar og tillögugerð á næstu árum.

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, skipaði starfshópinn (þá sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra) í júní sl. til að leggja mat á lendingarstaði út frá öryggi þeirra. Verkefnið var að leggja heildstætt mat á mikilvægi lendingarstaða á Íslandi út frá öryggishlutverki þeirra í víðum skilningi. 

Verkefnið var afmarkað við skráða lendingarstaði án áætlunarflugs og loftför sem nýtt eru til almannavarna, svo sem þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar. Einnig var það m.a. afmarkað við að sinna þurfi hefðbundnu sjúkraflugi, bregðast þurfi við fjölmennu slysi á landi eða sjó, flytja þurfi hóp fólks í sætum með fljótvirkum hætti eða rof verði á mikilvægri samgönguleið vegna hamfara.

Niðurstöður vinnuhópsins voru að sjúkra- og öryggisflugvöllur sem nýtast á flugvél Landhelgisgæslunnar og sjúkraflugvélum við erfiðar aðstæður þurfi að uppfylla eftirfarandi kröfur: Flugbraut hans þarf að lágmarki að vera klædd, 1.000 m löng og 30 m breið, flugbrautarljós þurfa að vera (þröskulds, enda- og hliðarljós), aðflugshallaljós, RNP-aðflug (gervihnattaleiðsaga) og upplýsingaþjónusta (veður og ástand flugvallar). Þá þarf að halda flugbraut hreinni og hálkuverja eftir þörfum.

Gerð er tillaga um hvaða lendingarstaðir ættu að vera til reiðu fyrir sjúkraflug og flug tengt þjóðaröryggi og náttúruvá.

Starfshópurinn telur m.a. að gera þurfi tilteknar ráðstafanir vegna núverandi sjúkraflugvalla á Blönduósi, Sauðárkróki, í Reykjahlíð og Norðfirði til að uppfylla kröfurnar. Starfshópurinn telur að byggja þurfi upp sjúkraflugvöll í Skaftafelli eða Fagurhólsmýri. Þá þurfi að skilgreina Rif og Bakka sem sjúkraflugvelli og byggja upp og viðhalda sem slíkum. Starfshópurinn kemst að þeirri niðurstöðu að þétta þurfi net sjúkraflugvalla. Skoða þurfi sérstaklega möguleika á að byggja upp nærri fjölförnustu ferðamannastöðunum þar sem langt er í bjargir, s.s. á Kirkjubæjarklaustri, Vík og Hólmavík.

Í vinnuhópum sátu: Friðfinnur Skaftason, formaður, og Valgerður B. Eggertsson fyrir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, Ágúst Gunnar Gylfason, Guðjón Atlason, Helga Harðardóttir, Jónas Guðmundsson, Leifur Hallgrímsson, Matthías Sveinbjörnsson, Ólöf Birna Ólafsdóttir og Sigrún Björk Jakobsdóttir.

Skýrslan var unnin í samstarfi við Flugmálafélag Íslands, heilbrigðisráðuneytið, Isavia innanlandsflugvelli, Landhelgisgæslu Íslands, Mýflug, Ríkislögreglustjóra, Samgöngustofu og Slysavarnafélagið Landsbjörg.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum