Hoppa yfir valmynd
14. janúar 2022 Innviðaráðuneytið

Opnað fyrir umsóknir um styrki til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða

  - myndHaraldur Jónasson / Hari

Innviðaráðherra hefur opnað fyrir umsóknir um framlög sem veitt eru til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða, sbr. aðgerð C.1 í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Sérstök áhersla er lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf og verða verkefni sem hafa jákvæð áhrif á þróun byggðar og búsetu sett í forgang. Landshlutasamtök sveitarfélaga geta fyrir hönd sóknaráætlanasvæða sótt um framlög sem í boði eru, en alls verða allt að 120 milljónir króna veittar til sértækra verkefna svæðanna. Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudaginn 28. febrúar 2022.

Úthlutun framlaga til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða byggir á reglum ráðherra um úthlutun á framlögum sem veitt eru til verkefna á grundvelli byggðaáætlunar. Er reglunum ætlað að tryggja að gætt sé jafnræðis, hlutlægni, gagnsæis og samkeppnissjónarmiða við úthlutun og umsýslu styrkja og framlaga úr byggðaáætlun.

Þriggja manna valnefnd gerir tillögur til ráðherra um veitingu framlaga til verkefna á grundvelli úthlutunarskilmála. Valnefndina skipa þau Sigurður Árnason, formaður, Elín Gróa Karlsdóttir og Snorri Björn Sigurðsson. Með nefndinni starfa Gauti Daðason, lögfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og Sigríður K. Þorgrímsdóttir, sérfræðingur hjá Byggðastofnun. Byggðastofnun annast fyrir hönd ráðuneytisins samningsgerð við styrkþega, umsýslu með greiðslum og eftirlit með framkvæmd verkefnisins.

Fylgiskjöl:

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum