Hoppa yfir valmynd
14. janúar 2022 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Ráðherra skipar starfshóp um gerð grænbókar um stöðu og áskoranir Íslands í orkumálum

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að vinna skýrslu, svo nefnda grænbók, um stöðu og áskoranir Íslands í orkumálum með vísan til áherslna og markmiða stjórnvalda í loftslagsmálum.

Skýrslunni er ætlað að draga fram staðreyndir um stöðu mála á grundvelli faglegra sjónarmiða og upplýsinga um lykilþætti á sviði orkumála og setja fram á aðgengilegu formi til upplýsinga fyrir stjórnvöld, hagaðila og almenning.

Starfshópnum er með vinnu sinni m.a. falið að gera grein fyrir orkuþörf, stöðu á flutningskerfi raforku og orkumarkaði á Íslandi með tilliti til loftslagsmarkmiða stjórnvalda með orkuskiptum. Þá hefur starfshópurinn það hlutverk að gera grein fyrir núverandi stöðu mála varðandi framboð og eftirspurn raforku.

Starfshópurinn mun hafa reglubundið samráð við lykilaðila, sem eru Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands,Samorka, Skipulagsstofnun, Orkuklasinn og Grænvangur. Þá mun hópurinn einnig viðhafa reglubundið samráð við sérstakan samráðshóp sem skipaður er fulltrúum ráðuneytisins, forstöðumönnum viðkomandi stofnanna og formanni verkefnastjórnar rammaáætlunar.

„Við stöndum frammi fyrir miklum áskorunum sem varða m.a. orkuskiptin og hvernig við náum metnaðarfullum markmiðum stjórnvalda í loftslagsmálum. Það er afar mikilvægt að fá yfirsýn og tölulegar upplýsingar um stöðu mála,  m.a. orkuþörfina, hvernig hægt er að nýta flutningskerfi okkar með sem bestum hætti og hvar úrbóta er þörf. Grænbókin sem starfshópnum hefur verið falið að vinna er mikilvægur grunnur til að byggja á frekari ákvarðanir og aðgerðir til að ná þessum markmiðum,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Starfshópinn skipa:

Vilhjálmur Egilsson, hagfræðingur, formaður,

Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur,

Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins.

 

Erla Sigríður Gestsdóttir og Magnús Dige Baldursson, frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu munu starfa með starfshópnum.

Starfshópurinn á að skila skýrslu sinni og tillögum til ráðherra fyrir 1. mars.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum