Hoppa yfir valmynd
2. júní 2022 Innviðaráðuneytið

Reglur um aukið eftirlit með öryggi vegamannvirkja hafa tekið gildi

Nýjar og skýrar reglur hafa verið settar um sjálfstætt eftirlit með öryggi vegamannvirkja. Þær tóku gildi í lok maí með breytingu á reglugerð nr. 866/2011 um öryggisstjórnun vegamannvirkja.

Markmiðið með reglunum er að efla enn frekar eftirlit með öryggi vegamannvirkja, m.a. við fjölbreyttar nýframkvæmdir og viðhald á vegum landsins. Breytingarnar fela í sér skýr ákvæði um sjálfstætt eftirlit Samgöngustofu með framkvæmd öryggisstjórnunar vegamannvirkja.

Einnig voru gerðar breytingar á reglugerðinni í tengslum við innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins um öryggisstjórnun vegagrunnvirkja.

Drög að reglunum voru settar í samráðsgátt stjórnvalda í apríl sl. og lauk samráði 6. maí.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum