Hoppa yfir valmynd
19. mars 2024 Utanríkisráðuneytið

Ráðherra kynnir þingsályktunartillögu um langtímastuðning við Úkraínu

Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra kynnti þingsályktunartillögu um stefnu um stuðning við Úkraínu til fimm ára á Alþingi í dag. Markmið stefnunnar er að festa umfangsmikinn stuðning Íslands við Úkraínu í varnarstríði sínu gegn innrásarliði Rússlands í sessi til langframa. 

Ráðherra lagði áherslu á mikilvægi stuðnings Íslands við núverandi aðstæður: „Innrásarstríð Rússlands í Úkraínu er alvarlegasta öryggisógn sem steðjað hefur að Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar og skýr atlaga að alþjóðakerfinu sem byggist á virðingu fyrir alþjóðalögum, friðhelgi landamæra og landhelgi ríkja,“ sagði ráðherra í framsögu sinni. 

Íslenskur stuðningur við öryggi og sjálfstæði Úkraínu væri þannig rökréttur í ljósi öryggishagsmuna Íslands og mikilvægi þess alþjóðakerfis sem fullveldi landsins byggir á.
Með stefnunni er markmiðið að Ísland styðji við sjálfstæði, fullveldi, friðhelgi landamæra, öryggi borgara, mannúðaraðstoð og uppbyggingarstarf í landinu. Hún byggir á fimm meginþáttum, öflugu tvíhliða samstarfi, virkri þátttöku í alþjóðlegu samstarfi, öflugum stuðningi við varnarbaráttu Úkraínu, mannúðaraðstoð, og stuðningi við viðhald grunnþjónustu og efnahags á meðan á átökum stendur og endurreisn og uppbyggingu eftir að þeim lýkur.

„Aldrei áður höfum við stutt með svo beinum hætti við varnir annars lands og það sem meira er, það hefur ríkt almenn sátt um þá aðstoð meðal þings og þjóðar. Það er enda augljóst að án varna er með öllu óþarft að leggja til fjármuni til enduruppbyggingar og viðhalds úkraínsks samfélags. Fái innrásarliðið sínu framgengt mun Úkraína heyra sögunni til,“ sagði ráðherra í ræðu sinni.

Stuðningur Íslands við Úkraínu frá því að stríðið braust út nemur 5,7 milljörðum íslenskra króna sem runnið hafa til varnar-, mannúðar- og efnahagsstuðnings við landið. 

Tillöguna má nálgast hér á vef Alþingis.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum