Hoppa yfir valmynd
30. apríl 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Tónlistarmiðstöð opnar fyrir styrkjaumsóknir úr Tónlistarsjóði - opin kynning fyrir áhugasama

Kórsöngur við opnun Tónlistarmiðstöðvar.  - myndTónlistarmiðstöð

Tónlistarmiðstöð auglýsir eftir umsóknum vegna seinni úthlutunar úr nýjum Tónlistarsjóði árið 2024. Umsóknarfrestur er til og með 21. maí nk. Kl.15:00. Tónlistarmiðstöð sinnir úthlutun úr Tónlistarsjóði fyrir hönd Menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Upplýsingar og umsóknargögn er að finna á heimasíðu Tónlistarmiðstöðvar. 

Samkvæmt nýjum tónlistarlögum og reglum um Tónlistarsjóð er hlutverk sjóðsins að efla íslenska tónlist, hljóðritagerð og þróunarstarf í íslenskum tónlistariðnaði. Sjóðurinn skal stuðla að kynningu á íslensku tónlistarfólki og tónsköpun þeirra hér á landi sem erlendis.

Tónlistarsjóður veitir fimm styrki úr fjórum deildum:

  • Tónlistarstyrkir – veittir úr deild frumsköpunar og útgáfu. Styrkur til að semja tónlist, taka hana upp, gefa út og kynna.
  • Flytjendastyrkir – veittir úr deild lifandi flutnings. Styrkur til tónleikahalds og tónleikaferða innanlands. Langtímastyrkir í boði.
  • Viðskiptastyrkir – veittir úr deild þróun og innviða. Styrkur vegna tónlistarverkefna svo sem tónlistarhátíða, tónleika­staða, viðskiptahugmynda í tónlist og sprotaverkefna. Langtímastyrkir í boði.

  • Markaðsstyrkir – veittir úr deild útflutnings. Styrkur til að vekja athygli erlendis.

  • Ferðastyrkir – veittir úr deild útflutnings. Styrkur vegna ferðalaga til að sækja sér tækifæri erlendis.

Styrkir úr Tónlistarsjóði skulu veittir til ákveðinna verkefna og að jafnaði ekki lengur en til 18 mánaða í senn. Að jafnaði er hvorki gert ráð fyrir styrkveitingum til rekstrar og umsýslu samtaka, fyrirtækja og stofnana, sem hljóta regluleg rekstrarframlög, né til verkefna eða viðburða sem þegar hafa átt sér stað.

Umsóknir verða ekki teknar til greina ef lokaskýrslur, eða áfangaskýrslur hafa ekki borist í umsóknarkerfið fyrir verkefni sem fengu styrk árið 2022 eða síðar. Það á við umsóknir úr „gamla“ Tónlistarsjóði og Hljóðritasjóði, en ekki Útflutningssjóði. Umsóknum, áfangaskýrslum og lokaskýrslum skal skilað á rafrænu formi.

Umsóknarfrestur er til kl. 15:00 þann 21. maí 2024.

Tónlistarmiðstöð býður upp á kynningu á Tónlistarsjóði miðvikudaginn 8. maí kl. 16:00. Nánar á Facebook viðburði Tónlistarmiðstöðvar.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum