Hoppa yfir valmynd
11. janúar 2011 Innviðaráðuneytið

Námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar

Í samstarfi Endurmenntunar Háskóla Íslands og velferðarráðuneytisins verður haldið námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar í febrúar.

Prófnefnd leigumiðlara heldur námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar í febrúar ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið er haldið samkvæmt húsaleigulögum, nr. 36/1994, og reglugerð um leigumiðlun, nr. 675/1994. Þátttöku ber að tilkynna til Endurmenntunar Háskóla Íslands eigi síðar en 31. janúar næstkomandi.

Samkvæmt húsaleigulögum mega þeir einir reka miðlun um leiguhúsnæði, þ.e. koma á leigusamningi, annast framleigu eða skipti á leiguhúsnæði sem hlotið hafa til þess sérstakt leyfi velferðarráðherra. Til að fá leyfi þarf að ljúka námskeiði og prófi. Lögfræðingar eru undanþegnir námskeiði og próftöku.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta