Hoppa yfir valmynd
14. maí 2024

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetaskosninga 2024

Sendiráðið í Washington vekur athygli á að utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna forsetakosninga 1. júní 2024 hefst fimmtudaginn 2. maí næstkomandi

Tekið verður á móti kjósendum í sendiráði Íslands, 2900 K Street NW, 20007 Washington DC, milli kl 10:00 og 16:00 föstudaginn 3. maí. föstudaginn 10. maí og föstudaginn 17. maíVegna öryggisgæslu í húsinu er mikilvægt að bóka tíma með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected].

Ef umræddir dagar henta ekki eru kjósendur beðnir um að taka slíkt sérstaklega fram í tölvupósti.

Þá hefur verið ákveðið að bjóða upp á utankjörfundaratkvæðagreiðslu í fastanefnd Íslands í New York, 733 Third Avenue, 18th Floor, New York NY 10017, dagana 15.-17. maí.

Opnunartímar verða eftirfarandi:
Miðvikudagur 15. maí frá 12:30-17:00.
Fimmtudagur 16. maí frá 10:00 –17:00
Föstudagur 17. maí frá 12:30-17:00

Þau sem hyggjast nýta sér þann kost eru beðin um að bóka tíma með því að senda tölvupóst á: [email protected]

Þau sem vilja kjósa á ræðisskrifstofum er bent á að hafa samband beint við ræðismenn til að panta tíma. Sjá lista yfir ræðismenn í Bandaríkjunum.

Mikilvæg atriði og praktískar upplýsingar: 
Mælt er með að kjósendur kynni sér upplýsingar um fyrirkomulag kosninga utan kjörfundar en upplýsingar um það má finna á Ísland.is


Hverjir eru á kjörskrá:
Eftir breytingar á kosningalögum halda íslenskir ríkisborgarar nú kosningarétti sínum í 16 ár í stað átta eftir flutning til útlanda.

Íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili erlendis lengur en 16 ár (talið frá 1. desember árið áður en kosningar eru haldnar) hefðu þurft að sækja um að verða teknir á kjörskrá fyrir 1. des 2023 til að geta kosið í komandi forsetakosningum.

Frekari upplýsingar um Íslendinga með lögheimili erlendis má finna á vef Þjóðskrár.

Ef kjósendur eru í vafa um hvort þeir séu á kjörskrá, má fletta upp viðkomandi kennitölu hjá Þjóðskrá eftir 26. apríl í því skyni. Hvetjum við kjósendur eindregið til að gera það fyrirfram ef þeir eru í vafa. 

Hvernig kem ég atkvæði mínu til skila:
Skv. kosningalögum ber kjósandi sjálfur ábyrgð á því að koma atkvæði sínu á réttan stað.
Hægt er að setja bréfið í póst eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma til skila. Kjörstjóra (þ.m.t sendiráðum) er skylt að koma atkvæðinu í almennan póst ef kjósandi óskar þess en kjörstjóri getur þó ekki tryggt að atkvæðið berist í tæka tíð. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum