Ráðstefna um húsnæðismál sveitarfélaga 16. nóvember
Varasjóður húsnæðismála í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, Íbúðalánasjóð og velferðarráðuneytið boðar til ráðstefnu um húsnæðismál sveitarfélaga. Ráðstefnan hefst klukkan 13:00 á Hótel KEA Akureyri föstudaginn 16.nóvember. Ráðstefnulok eru áætluð klukkan 15:45.
Dagskrá:
13:00 Setning: Ingi Valur Jóhannsson formaður ráðgjafanefndar Varasjóðs húsnæðismála
13:05 Ársskýrsla og leiguíbúðakönnun Varasjóðs húsnæðismála: Guðni Kristjánsson framkvæmdastjóri Varasjóðs húsnæðismála
13:25 Snertifletir Íbúðalánasjóðs og sveitarfélaga: Úlfar Þór Indriðason sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Íbúðalánasjóðs.
13:55 Stefnumótun stjórnvalda í húsnæðismálum: Ingi Valur Jóhannsson deildarstjóri í Velferðarráðuneyti og Hrafnkell Hjörleifsson sérfræðingur í Velferðarráðuneyti
14:15 Kaffihlé
14:30 Félagsbústaðir - félagslegt leiguhúsnæði í Reykjavík: Sigurður Kr. Friðriksson framkvæmdastjóri Félagsbústaða
14:50 Leiguíbúðir og sérúrræði fyrir fatlaða: Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri Fasteigna Akureyrarbæjar
15:10 Umræður og fyrirspurnir 15:45 Ráðstefnulok Ráðstefnustjóri er Skúli Þórðarson sveitastjóri í Húnaþingi Vestra
Áhugasamir um þátttöku eru vinsamlegast beðnir um að senda tölvupóst til Guðna Kristjánssonar framkvæmdastjóra Varasjóðs húsnæðismála: [email protected]