Hoppa yfir valmynd
17. desember 2015 Innviðaráðuneytið

Samningur um leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna framlengdur

Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra og Jóhannes Gunnarsson formaður Neytendasamtakanna undirrita samninginn
Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra og Jóhannes Gunnarsson formaður Neytendasamtakanna undirrita samninginn

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Jóhannes Gunnarsson formaður Neytendasamtakanna undirrituðu í dag  samning sem felur í sér áframhaldandi þjónustu samtakanna við leigjendur íbúðarhúsnæðis. Samningurinn gildir til ársloka 2016.

Neytendasamtökin hafa árum saman sinnt aðstoð við leigjendur í einhverjum mæli og hefur eftirspurn eftir þessari þjónustu farið ört vaxandi. Frá árinu 2011 hafa Neytendasamtökin annast þjónustu við leigjendur samkvæmt formlegum samningi við velferðarráðuneytið sem kveður á um að samtökin sinni upplýsingagjöf til leigjenda um réttindi þeirra og skyldur, auk þess að veita lögfræðiráðgjöf. Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna hefur gefist vel og ljóst er að mikil eftirspurn er meðal leigjenda eftir upplýsingum og ráðgjöf á þessu sviði.  

Erindum sem berast Neytendasamtökunum um húsaleigumál hefur fjölgað umtalsvert frá því að fyrsti þjónustusamningurinn var gerður milli ráðuneytisins og Neytendasamtakanna árið 2011. Árið 2012 bárust 1431 erindi en gert er ráð fyrir að í ár muni málafjöldinn enda í 2184 og nemur aukningin um 8%.

Neytendasamtökin reka vefsvæði með margvíslegum upplýsingum fyrir leigjendur, í samræmi við samninginn við velferðarráðuneytið frá árinu 2011. Á vefsíðunni er leitast við að svara öllum helstu álitaefnum sem upp geta komið í tengslum við gerð og framkvæmd leigusamninga. Þar eru einnig birtir útdrætti úr öllum álitum kærunefndar húsamála frá árinu 2007. Enn fremur er þar að finna reifanir á dómum sem hafa gengið undanfarin ár og varða leigurétt og eru útdrættir úr dómunum einnig birtir á vefsvæðinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta