Hoppa yfir valmynd
29. október 2014 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Undirritaði yfirlýsingu um gagnsæi og sanngirni í skattamálum

Bjarni Benediktsson undirritaði yfirlýsinguna fyrir Íslands hönd á fundií Berlín Mynd:Axel Schmidt/OECD
Bjarni Benediktsson undirritaði yfirlýsinguna fyrir Íslands hönd á fundi í Berlín Mynd:Axel Schmidt/OECD

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, undirritaði í dag fyrir Íslands hönd yfirlýsingu vegna upptöku nýs alþjóðlegs staðals um sjálfkrafa upplýsingaskipti í skattamálum.  Alls undirrituðu fulltrúar 51 ríkis yfirlýsinguna, en undirritunin fór fram í Berlín á Global Forum, fundi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um gagnsæi og upplýsingaskipti í skattamálum.

Forgönguríkin 51, sem í dag undirrituðu yfirlýsinguna,  hafa skuldbundið sig til að innleiða hinn nýja alþjóðlega staðal um sjálfkrafa upplýsingaskipti í málum sem tengjast skattaupplýsingum skattgreiðenda og  viðurkenna að árangursrík barátta gegn skattaundanskotum verður einungis háð á alþjóðavettvangi.  Sjálfkrafa upplýsingaskipti hefjast á árinu 2017 vegna fjármagnstekna sem aflað er á árinu 2016. 

Nýi staðallinn felur í sér víðtæk skipti á upplýsingum vegna reikninga í aflandsríkjum, m.a. um stöðu reikninga og raunverulega eigendur þeirra. Markmiðið er að stöðva glæpastarfsemi sem tengist skattaundanskotum og takast á við skattsvik. Slík glæpastarfsemi fárra óheiðarlegra aðila minnkar tekjur hins opinbera, grefur undan trúverðugleika skattkerfa og eykur skattbyrði skattgreiðenda. 

Frumkvæði og forysta forgönguhópsins hefur leitt til þess að ríki sem eru miðstöðvar fjármálaviðskipta hafa nú skuldbundið sig til þess að hlíta tiltekinni tímaáætlun. Munu ríkin skiptast á upplýsingum frá árinu 2017 eða 2018. 

Á vef OECD má nálgast lista yfir þau ríki sem undirrituðu yfirlýsinguna. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum