Tilkynning um skipan nýrrar stjórnar Íbúðalánasjóðs
Eygló Harðadóttir félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað nýja stjórn Íbúðalánasjóðs. Formaður stjórnarinnar er Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir lögmaður og tekur hún við af Jóhanni Ársælssyni. Tilkynning um skipan nýrrar stjórnar hefur verið birt á vef Kauphallar Íslands.
Samkvæmt breytingum á lögum um húsnæðismál frá júlí 2012 er nú gerð krafa um að forstjóri og stjórn sjóðsins standist kröfur Fjármálaeftirlitsins um hæfi.
Stjórn Íbúðalánasjóðs er skipuð eftirtöldum fulltrúum:
- Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, lögmaður, formaður stjórnar
- Hrund Hafsteinsdóttir, lögmaður, varaformaður
- Haukur Ingibergsson, fv. forstjóri Þjóðskrár Íslands, aðalmaður
- Kristrún Heimisdóttir, lektor í lögfræði við Háskólann á Akureyri, aðalmaður
- Stefán Ólafsson, prófessor félagsvísindadeild HÍ, aðalmaður
Til vara:
- Kristinn Dagur Gissurarson, viðskiptafræðingur
- Jóhann Birgisson, bankamaður
- Halldóra Hauksdóttir, lögfræðingur
- Margrét Rósa Sigurðardóttir, framhaldsskólakennari
- G. Valdimar Valdimarsson, kerfisfræðingur