Námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar
Námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar verður haldið í samstarfi Endurmenntunar Háskóla Íslands og félags- og tryggingamálaráðuneytisins í febrúar. Samkvæmt húsaleigulögum mega þeir einir reka miðlun um leiguhúsnæði, þ.e. koma á leigusamningi, annast framleigu eða skipti á leiguhúsnæði, sem hlotið hafa til þess sérstakt leyfi félags- og tryggingamálaráðherra. Til að fá leyfi þarf að ljúka námskeiði og prófi. Lögfræðingar eru undanþegnir námskeiði og próftöku.
Prófnefnd leigumiðlara heldur námskeið og próf til réttinda leigumiðlunar nú í febrúar ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið er haldið samkvæmt húsaleigulögum, nr. 36/1994, og reglugerð um leigumiðlun, nr. 675/1994. Þátttöku ber að tilkynna til Endurmenntunar Háskóla Íslands eigi síðar en 26. janúar næstkomandi.
Endurmenntun Háskóla Íslands annast skráningu og veitir nánari upplýsingar.