Hoppa yfir valmynd

26 Lyf og lækningavörur

Heilbrigðisráðuneytið

Skilgreining málefnasviðs

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.

Fjárhagsleg þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024

Útgjaldarammi - heildaryfirlit og breytingar eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefna­sviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breytingar á ramma milli áranna 2022–2023

Heildargjöld málefnasviðs 26 Lyf og lækningavörur árið 2024 eru áætluð 41.297,8 m.kr. og aukast um 2.493,4 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2023 eða sem svarar til 6,8%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 4.783,6 m.kr. milli ára eða sem svarar til 13,1 %.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Útgjöld ríkissjóðs.

Útgjaldarammi - hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2022 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2022 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu

26.1 Lyf

Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisráðuneytis, Landspítala, Lyfjastofnunar og Sjúkratrygginga Íslands. Embætti landlæknis sér um eftirlit með lyfjaávísunum. Nánar er fjall­að um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Bætt geðheilsa með því að vinna gegn mis- og ofnotkun geð- og verkjalyfja

Ljúka innleiðingu reglugerða sem tengjast nýjum lyfjalögum.

Heilbrigðisráðuneyti

Innan ramma

Ljúka gerð lyfjalista fyrir heilbrigðisstofnanir og heilsugæslu og innleiðingu þeirra.

Heilbrigðisráðuneyti og heilbrigðisstofnanir

Innan ramma

Markmið 2: Aukin gæði

Innleiða aukna lyfjafræðilega þjónustu í samræmi við niðurstöður tilraunaverkefna og tillögur hvítbókar.

 

Heilbrigðisráðuneyti

Innan ramma

Markmið 3: Rafvæðing til lækkunar á lyfjakostnaði

Halda áfram innleiðingu á miðlægu lyfjakorti*.

 

Heilbrigðisráðuneyti og embætti landlæknis

Innan ramma

     

* Verkefnið styður jafnframt við markmið 2.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 33.588,5 m.kr. og hækkar um 2.246,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 1.784,3 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 1.343 m.kr. til að mæta auknum kostnaði í almennum lyfjum sem er til kominn vegna lýðfræðilegra þátta (öldrun þjóðarinnar) og aukningar í ákveðnum lyfjaflokkum.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 500 m.kr. til að mæta kostnaði við upptöku nýrra leyfisskyldra lyfja.
  3. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 590,8 m.kr. til að mæta kerfislægum vexti í kostnaði vegna lyfja.
  4. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins er 187,2 m.kr.

26.20 Lækningatæki

Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisráðuneytis og Lyfjastofnunar sem annast eftirlit með lækningatækjum. Engin útgjöld eru reikningsfærð á fjárlagalið málaflokksins en markmið var sett fyrir málaflokkinn í fjármálaáætlun 2024–2028.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Tryggja að ný tækni og nýjar aðferðir, sem fjármagnaðar eru af hinu opinbera, leiði til besta mögulegs árangurs fyrir sjúklinga og samfélagið

Innleiða heilbrigðistæknimat (HTA).

Heilbrigðisráðuneyti og Lyfjastofnun

Innan ramma

     

26.30 Hjálpartæki

Starfsemi málaflokksins er í höndum Sjúkratrygginga Íslands sem sjá að mestu um úthlutun hjálpartækja.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2023 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2022. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Einfalda aðgang fólks að hjálpartækjum og tryggja jafnræði við notkun þeirra

Skoða aukna aðkomu heilsugæslu að vali og ráðgjöf vegna hjálpartækja.

Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og Sjúkratryggingar Íslands

Innan ramma

Markmið 2: Bæta aðgang að heildstæðum upplýsingum um hjálpartæki

Bæta upplýsingar um hjálpartæki á vefsíðu Sjúkra­trygginga Íslands til fagaðila og einstaklinga.

Sjúkratryggingar Íslands

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 7.709,7 m.kr. og hækkar um 246,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 505,9 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 239,1 m.kr. til að mæta kerfislægum vexti í notkun hjálpartækja.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 7,7 m.kr. vegna flutnings verkefnis um augnsmíði milli ráðuneyta.
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum