Velkomin til Þingvalla – 15-17. júní
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum efnir til afmælisdagskrár með mismunandi viðburðum yfir árið til að minnast tímamótanna. Viðburðir verða fjölbreyttir en áhersla verður sérstaklega á helgina 15-16. júní. Mikil áhersla verður á söng í allskonar myndum en þó með sérstakri áherslu á kórsöng.
Hátíðasvæðið mun verða fyrst og fremst í og við Almannagjá, Þingvallakirkju og að gamla Valhallarsvæðinu. Við Valhallarsvæðið verður matarvagnahátíð í samstarfi við Götubita.ehf þar sem gestir geta keypt veitingar. Frítt verður á sýninguna Hjarta lands og þjóðar í gestastofu þjóðgarðsins dagana 15-17. júní.
Nánari dagskrá hátíðarinnar á vef þjóðgarðsins.