Fara beint í efnið

Mannauðstorg ríkisins: Ráðningar

Starfatorg

Eftirfarandi leiðbeiningar eru fyrir birtingu auglýsinga um laus störf hjá ríkinu á Starfatorgi en öllum þeim sem skráð eru í fyrirtækjaskrá Skattsins með rekstrarformið „ríkisstofnun“ ber að auglýsa laus störf á Starfatorgi. Undantekningar á því eru störf sem tilgreind eru í 2. grein reglna um auglýsingar lausra starfa.

Stjórnendur ráðuneyta og stofnana eða starfsmenn í umboði þeirra annast gerð auglýsinga og bera ábyrgð á innihaldi starfsauglýsingar.

Birting og efni auglýsinga skal uppfylla skilyrði reglna um auglýsingar lausra starfa, sbr. 2. og 3. gr. reglnanna.

Gæta þarf að umsóknarfrestur miðist við fyrsta dag birtingar og athuga einnig að tilgreindur umsóknarfrestur sé a.m.k. tíu dagar frá birtingu auglýsingar á Starfatorgi. Umsóknarfresti skal ljúka á virkum degi. Auglýsing fer sjálfkrafa af Starfatorgi þegar umsóknarfrestur rennur út.

Ráðuneyti og stofnanir eru hvattar til að nota ráðningarkerfi ríkisins, sem er hluti af Orra og er af því margskonar ávinningur. Þegar skráningu starfsins í ráðningarkerfið er lokið er smellt á hnappinn „senda á Starfatorg“. Þá birtist auglýsingin annað hvort nær samstundis á Starfatorgi eða síðar ef tíma- og dagsetning birtingar er tilgreind sérstaklega.

Ef stofnun notar ekki Ráðningarkerfið er atvinnuauglýsing send tímanlega til Fjársýslunnar, sem hefur umsjón með Starfatorgi, með tölvupósti: laun@fjs.is

Umsækjendur verða að leita til tengiliðar stofnunar eða ráðningarstofu sem vísað er á í viðkomandi starfsauglýsingu.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?

merki

Mannauð­s­torg ríkisins

Ábyrgðaraðilar síðunnar eru Kjara- og mannauðssýsla ríkisins og Mannauðs- og launasvið Fjársýslu ríkisins.