Hoppa yfir valmynd

Menning

Sendiráð gegna mikilvægu hlutverki á sviði menningar.  Sendiráðið gætir lögum samkvæmt menningarhagsmuna Íslands erlendis, miðlar og fræðir um íslenskan menningararf og samtímamenningu, skipuleggur menningarviðburði gjarnan í samstarfi við menningarstofnanir og kynningarmiðstöðvar,  styður við viðskiptatækifæri á sviði skapandi greina, er bakhjarl listafólks og annarra fulltrúa íslensks menningarlífs,  kemur á tengslum, miðlar upplýsingum um listviðburði á heimasíðu og til tengiliða sendiráðsins.  

Sendiráðin byggja starfsemi sína á árlegum menningaráætlunum en verkefni spretta upp árið um kring og leitast sendiráðið við að koma upplýsingum á framfæri eða styðja við með öðrum hætti.  Sendiráðið hefur ekki yfir sjóði að ráða til stuðnings menningarviðburðum en getur stutt við þá með ýmsum öðrum hætti.  Menningarstarf sendiráðsins er fjármagnað af utanríkisráðuneyti og mennta- og menningarmálaráðuneyti,  opinberum og hálfopinerum stofnunum og fyrirtækjum, íslenskum og erlendum.

Þér er velkomið að hafa samband við sendiráðið vanti þig frekari upplýsingar eða þjónustu.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum