Hoppa yfir valmynd

Viðskipti

Viðskiptaþjónusta sendiráðsins

Meginverkefni sendiráðs Íslands í Nýju Delí er að vinna að frekari eflingu viðskiptasamstarfs Íslands og Indlands, með aukinni staðarþekkingu og uppbyggingu tengslanets í indversku viðskipta- og stjórnmálalífi. Það starf er einkum þríþætt:

  • Styrking lagalegs ramma viðskipta ríkjanna.
  • Aðstoð við og kynning á íslenskum atvinnugreinum sem hyggja á viðskipti við Indland. Samstarf við íslensk og indversk hagsmunasamtök í einstökum geirum, s.s. sjávarútvegi, orku, fjárfestingum, lyfjaiðnaði, ferðamennsku o.fl.
  • Almenn þjónusta og bein aðstoð við íslensk fyrirtæki sem hyggja á viðskipti við Indland. Meðal þjónustu sendiráðsins má nefna skrifstofuaðstöðu, tengslamyndun, markaðsrannsóknir, milligöngu um áreiðanleikakannanir, upplýsingamiðlun um stofnun fyrirtækja og regluverk varðandi viðskipti á Indlandi.

Helstu hagsmunasamtök Indlands á sviði viðskipta eru á meðal samstarfsaðila sendiráðsins, þ.á.m.:

Staðarráðnir viðskiptafulltrúi sendiráðsins, hr. Rahul Chongthan, og aðstoðarviðskiptafulltrúi, frú Deepika Sachdev, eru hluti af viðskiptafulltrúakerfi Viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins (VUR).

Viðskipti á Indlandi

Ýmis íslensk fyrirtæki eiga þegar í viðskiptum á Indlandi. Erlend og alþjóðleg fyrirtæki hafa undanfarin ár gefið Indlandi aukin gaum sem fjárfestinga- og viðskiptamöguleika, eins og lesa má úr tölum um stóraukna erlenda fjárfestingu erlendra aðila á Indlandi. Hagvöxtur á Indlandi endurspeglar þá gríðarlegu efnahagslegu uppbyggingu sem staðið hefur yfir og fram undan er á Indlandi, næst fjölmennasta ríki heims.

Íslenskum aðilum sem hafa hug á viðskiptum við eða á Indlandi er bent að hafa samband við sendiráðið sem veitir margvíslega viðskiptaþjónustu í því tilliti, t.d. með gerð markaðsyfirlita, aðstoð við tengslamyndun á Indlandi, ráðgjöf um regluverk indverskra stjórnvalda og margt fleira.

Markmið sendiráðs Íslands á Indlandi er að nýta þann pólitíska velvilja sem ríkir milli Íslands og Indlands til að ýta undir raunsanna efnahags- og viðskiptasamvinnu fyrirtækja, stofnana og einkaaðila.

Iceland India Business Guide

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum