Hoppa yfir valmynd

Styrkir og sjóðir

Á vegum matvælaráðuneytisins eru eftirfarandi sjóðir starfræktir:

Styrkveitingar til verkefna og viðburða á málefnasviðum ráðherra haustið 2022 

Matvælaráðuneytið veitir styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum matvælaráðherra.

Ekki eru veittir styrkir til ríkisstofnana eða sveitarfélaga einstaklinga, rekstrarstyrkir, ferðastyrkir, styrkir til nefndarsetu eða styrkir til BA/BS, eða meistaraprófa. Þá eru ekki veittir styrkir til bæjarhátíða.

Við úthlutun er horft til ýmissa þátta, m.a. hvort verkefnin þyki hafa gildi fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks, hvort verkefnið búi yfir sérstöðu eða nýnæmi og hvort markmið og mælikvarðar séu skýrir. Frekari upplýsingar um styrkhæfi, mat á umsóknum og viðmið við úthlutum má finna í úthlutunarreglum.

Hver einstakur styrkur getur numið allt að 10% heildarupphæð úthlutana.

Heildarupphæð sem ráðherra hefur til ráðstöfunar haustið 2022 er 10.000.000 kr.

Auglýst verður eftir umsóknum á vef matvælaráðuneytisins á haustmánuðum 2022.

Ráðuneytið mun ekki taka til umfjöllunar umsóknir sem berast utan auglýsts tímafrest eða sem berast eftir öðrum leiðum en í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins.

Eftirtalin gögn skulu fylgja með umsóknum:

  • Upplýsingar um umsækjanda eða umsækjendur.Upplýsingar um aðra þátttakendur og samstarfsaðila, ef einhverjir eru.
  • Nafn þess sem annast samskipti við ráðuneytið.
  • Nákvæm lýsing á verkefni, markmiðum þess og þýðingu fyrir umsækjanda og aðra.
  • Lýsing á því hvernig árangur verkefnisins verði metinn.
  • Tíma- og verkáætlun.
  • Fjárhagsáætlun, þar sem koma m.a. fram upplýsingar um áætlaðan kostnað, tekjur, hlutdeild annarra í kostnaði við verkefnið og styrkfé sem verkefnið hefur hlotið eða hefur sótt um.
  • Staðfest gögn frá samstarfsaðilum sem og önnur gögn til stuðnings umsókn.

Óska má eftir nánari upplýsingum um styrkina gegnum netfangið [email protected]

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum