Hoppa yfir valmynd

Umhverfisstefna Stjórnarráðsins

Framtíðarsýn

Stjórnarráð Íslands hefur sjálfbæra þróun og vernd umhverfisins að leiðarljósi í öllu sínu starfi. Á þann hátt leggur Stjórnarráðið sitt af mörkum til að mæta þörfum samtímans án þess að draga úr möguleikum komandi kynslóða til þess að mæta þörfum sínum.

Umhverfisstefnan og framkvæmd hennar er liður í daglegu starfi Stjórnarráðsins til að draga úr álagi á umhverfið, auka gæði og vekja áhuga á innra umhverfisstarfi. Stefnan tekur til allrar starfsemi Stjórnarráðsins þ.m.t. mötuneyta og ræstinga og á einnig við um innkaup, vinnuumhverfi, notkun auðlinda og meðferð efna og úrgangs.

Ríkisstjórnin hefur samþykkt stefnu um vistvæn innkaup og rafræna stjórnsýslu, sem skiptir miklu máli í framkvæmd umhverfisstefnunnar.

Stjórnarráð Íslands fylgir lögum og reglum um umhverfismál í starfsemi sinni. Ráðuneytisstjórar eru ábyrgir fyrir framkvæmd stefnunnar. Allt starfsfólk Stjórnarráðsins framfylgir umhverfisstefnunni og hefur hana að leiðarljósi í störfum sínum.  Sérhver starfsmaður sýnir gott fordæmi og leggur sitt af mörkum í þágu umhverfisverndar og sjálfbærrar þróunar.

Markmið

  1. Að hafa sjálfbæra þróun og vernd umhverfisins  að leiðarljósi í öllu starfi Stjórnarráðsins.
  2. Að úrbætur í  rekstri og þjónustu taki mið af því að minnka umhverfisáhrif.
  3. Að halda auðlinda- og efnanotkun í lágmarki og  dregið  úr mengun eins og kostur er.
  4. Að vinna stöðugt að því að draga úr úrgangi og stuðla að endurnýtingu og endurvinnslu hans.
  5. Að efla vistvænar samgöngur í samræmi við aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum.

Aðgerðir:

Aðföng

  1. Velja skal umhverfismerktar vörur í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um vistvæn innkaup og nota rammasamning Ríkiskaupa.
  2. Við innkaup skal tekið tillit til umhverfissjónarmiða jafnt sem kostnaðar og gæða. Ef vörur eða þjónusta eru sambærilegar að öðru leyti ber að velja þann kost sem telst síður skaðlegur umhverfinu.  
  3. Draga úr notkun einnota aðfanga, s.s. einnota borðbúnaðar og óþarfa umbúða.

Rekstur og viðhald

  1. Við rekstur og viðhald bygginga og lóða á vegum Stjórnaráðsins skal leitast við að velja vistvæna kosti hverju sinni s.s. málningarvörur, ljósaperur, garðaúðun, áburð o.fl.
  2. Upplýsa skal verktaka um stefnu Stjórnarráðsins í umhverfismálum og gera kröfur um að þeir fylgi henni eftir.
  3. Allur tölvu- og skrifstofubúnaður skal vera með viðeigandi umhverfis- og orkusparandi merkingar.

Nýting orkuauðlinda

  1. Fara skal sparlega með vatn og  orkuauðlindir, t.d. láta vatn ekki renna að óþörfu, slökkva á rafmagnstækjum og ljósum í lok vinnudags eða  þegar ekki er nauðsynlegt að hafa kveikt.

Efnanotkun

  1. Fara sparlega með efni og efnavörur, t.d. við uppþvott og ræstingar.
  2. Allar ræstivörur sem notaðar eru í Stjórnarráðinu skulu vera merktar með viðurkenndu umhverfismerki, s.s. Norræna svaninum, Evrópublóminu eða Bra Miljöval.

Endurnýting og meðferð úrgangs

  1. Flokka og ganga frá úrgangi í samræmi við leiðbeiningar hvers ráðuneytis og samkvæmt flokkunarkerfi þjónustufyrirtækis.
  2. Stöðugt skal draga úr pappírsnotkun, m.a. með því að prenta báðum megin á blöðin og gæta þess að prenta hvorki né ljósrita að óþörfu.
  3. Öllum spilliefnum skal fargað á viðeigandi hátt, s.s. rafhlöðum, prenthylkjum, ljósaperum og málningarvörum.
  4. Öllum öðrum úrgangi skal fargað á viðeigandi hátt.

Samgöngur

  1. Leitast skal við að velja umhverfisvænar leiðir í samgöngum þegar ferðast er á vegum ráðuneyta, t.d. óska eftir vistvænum bílum hjá leigubílastöðvum,  samnýta leigubíla og ganga styttri vegalengdir.
  2. Leitast skal við að halda fjarfundi eftir því sem kostur er.
  3. Við kaup á bifreiðum fyrir ráðuneytin skal velja sparneytin og vistvæn ökutæki.

Umhverfisvísar og fræðsla

  1. Mælst er til að ráðuneytin haldi yfirlit yfir helstu „grænu“ lykiltölur í rekstri og skrái og vakti árangurinn með það að markmiði að stuðla að betri nýtingu auðlinda, að draga úr sóun hráefna og auka endurnýtingu og endurvinnslu. Dæmi: pappírsnotkun, orkunotkun, efnanotkun og magn sorps.
  2. Starfsfólk Stjórnarráðsins fær reglulega fræðslu um umhverfismál.

Útgefið í júní 2011

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum