Hoppa yfir valmynd

Um sendiskrifstofu

Hlutverk og starfsemi sendiráðs Íslands í Washington D.C.

Meginhlutverk sendiráðs Íslands í Washington D.C. er að hlúa að og efla tvíhliða samstarf Íslands og Bandaríkjanna, og annarra umdæmisríkja sendiráðsins á sviði stjórnmála, varnar- og öryggismála, viðskipta, mennta- og menningarmála. Því hlutverki er einkum sinnt með eftirfarandi hætti:

  • Að gera grein fyrir stefnu íslenskra stjórnvalda í helstu málaflokkum í bandaríska stjórnkerfinu og þannig auka skilning á og stuðning við íslenska hagsmuni. Samhliða því að fylgjast með og gera grein fyrir stefnu bandarískra stjórnvalda í helstu málaflokkum, og leggja mat á aðgerðir Bandaríkjastjórnar með tilliti til mögulegra áhrifa á íslenska hagsmuni.
  • Að styðja við íslenskt atvinnulíf í viðskiptum við Bandaríkin, bæði með stuðningi við einstök fyrirtæki og atvinnugreinar, og með því að stuðla að gerð viðskiptasamninga á milli ríkjanna.
  • Að koma íslenskri menningu á framfæri í Bandaríkjunum og efla menntasamstarf Íslands og Bandaríkjanna.
  • Að aðstoða og standa vörð um réttindi íslenskra ríkisborgara í Bandaríkjunum og efla þjóðrækni meðal Íslendinga og afkomenda þeirra í Bandaríkjunum og umdæmisríkjum.
  • Sendiráðið er einnig tengiliður við og tekur þátt í starfi NATO Allied Command Transformation í Norfolk. Sendiráðið tekur þátt í samráði sendiráða í Washington D.C. um málefni Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Frekari upplýsingar um starfsemi sendiráðsins veitir starfsfólk þess í gegnum netfangið [email protected].

Sendiráð Íslands í Washington D.C.

Heimilisfang

House of Sweden, 2900 K Street N.W. #509
Washington DC 20007-1704

Sími: +1 (202) 265 6653

Netfang 

washington[hjá]utn.is

Afgreiðsla virka daga frá kl. 09:00 - 16:00

Sendiráð Íslands í Washington D.C.Facebook hlekkurSendiráð Íslands í Washington D.C.Twitte hlekkur
NafnStarfsheitiNetfang
Ann-Sofie Coxáritunarfulltrúi[email protected]
Ásdís Hreinsdóttiryfirmaður ræðis- og áritunardeildar[email protected]
Bergdís Ellertsdóttirsendiherra[email protected]
Davíð Logi Sigurðssonsendifulltrúi[email protected]
Garðar Forbergsendiráðunautur[email protected]
Kristín Arankastjórnarráðsfulltrúi[email protected]
Ragnhildur E. Arnórsdóttirsendiráðunautur[email protected]
Skrifstofa sendiherra/Ambassador's office[email protected]

Sendiherra

Bergdís Ellertsdóttir

Ferilskrá (á ensku).

Ísland er með kjörræðisskrifstofur í flestum fylkjum Bandaríkjanna og í umdæmisríkjunum Argentínu, Brasilíu, Chile og Mexíkó. Hlutverk kjörræðismanna er að gæta hagsmuna íslenskra ríkisborgara í gistiríki og styðja við stjórnmála-, viðskipta- og menningarsamstarf. Kjörræðismenn aðstoða einnig, eftir föngum, íslenska ríkisborgara sem eru í vanda staddir í gistiríki.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum