Hoppa yfir valmynd

Kosningarréttur og kjörskrá

Gerð kjörskrár

Sveitarstjórnir leggja fram kjörskrár á grundvelli kjörskrárstofna frá Þjóðskrá Íslands. Á kjörskrá skal taka alla þá sem kosningarrétt eiga í viðkomandi kosningum og er skráning á kjörskrá skilyrði þess að fá að greiða atkvæði. 

Þjóðskrá Íslands sendir sveitarstjórnum kjörskrárstofn fljótlega eftir viðmiðunardag kjörskrár sem er 6. júní 2020. Kjörskrár skulu lagðar fram eigi síðar en tíu dögum fyrir kjördag, miðvikudaginn 17. júní 2020. Skulu þær liggja frammi á skrifstofum sveitarfélaga eða öðrum hentugum stað á almennum skrifstofutíma til kjördags.

Hverjir eiga kosningarrétt?

Kosningarrétt við forsetakosningarnar eiga allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og með lögheimili á Íslandi.

Jafnframt eiga kosningarrétt þeir íslenskir ríkisborgarar sem flutt hafa lögheimili sitt til útlanda eftir 1. desember 2011 og náð hafa 18 ára aldri á kjördag. Þá eiga kosningarrétt þeir íslenskir ríkisborgarar, sem flutt hafa lögheimili sitt til útlanda fyrir 1. desember 2011, enda hafi þeir sótt um það til Þjóðskrár Íslands  fyrir 1. desember 2019. Erlendir ríkisborgarar eiga ekki kosningarrétt við forsetakosningar og eru því ekki á kjörskrá. Eina undantekningin eru danskir ríkisborgarar, sem eiga kosningarrétt samkvæmt lögum nr. 85/1946, þ.e. þeir sem voru búsettir á Íslandi 6. mars 1946 eða á síðustu 10 árum fyrir þann tíma.

Hvar ertu á kjörskrá?

Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili á viðmiðunardegi, þ.e. þremur vikum fyrir kjördag, þann 6. júní 2020. Flutningur lögheimilis eftir þann tíma breytir ekki skráningu á kjörskrá.

Þeir íslenskir ríkisborgarar, sem lögheimili eiga erlendis en sem kosningarrétt eiga við forsetakosningarnar, eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir áttu síðast skráð lögheimili hér á landi. Þeir sem lögheimili áttu í Reykjavík skiptast þannig milli Reykjavíkurkjördæmanna að þeir sem fæddir eru 1. til 15. hvers mánaðar eru á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmi suður en þeir sem fæddir eru 16. dag mánaðar eða síðar í Reykjavíkurkjördæmi norður. Hið sama gildir um þá sem skráðir eru með ótilgreint lögheimili í Reykjavík á viðmiðunardegi kjörskrár.

Eftir viðmiðunardag kjörskrár, 6. júní 2020, munu kjósendur geta kynnt sér hér á vefnum hvar þeir eru skráðir á kjörskrá.

Athugasemdir við kjörskrá

Hver sem er getur gert athugasemdir til sveitarstjórnar um að nafn eða nöfn einhverra kjósenda vanti á kjörskrá eða þeim sé þar ofaukið. Heimilt er að gera slíkar athugasemdir til sveitarstjórnar fram á kjördag.

Sveitarstjórn skal þegar taka til meðferðar athugasemdir er henni berast vegna kjörskrár og gera viðeigandi leiðréttingar á henni. Tilefni slíkra leiðréttinga er einkum öflun eða missir íslensks ríkisfangs eða andlát á tímabilinu frá viðmiðunardegi kjörskrár til kjördags. Slíkar leiðréttingar má gera fram á kjördag. Óheimilt er að breyta kjörskrá vegna breytts lögheimilis hafi tilkynning um nýtt lögheimili ekki borist Þjóðskrá Íslands fyrir viðmiðunardag kjörskrár, 6. júní 2020.

Sveitarstjórn skal þegar tilkynna hlutaðeigandi einstaklingum um leiðréttingar á kjörskrá, svo og þeirri sveitarstjórn er málið getur varðað. Sveitarstjórn skal jafnframt tilkynna hlutaðeigandi kjörstjórn um leiðréttingar á kjörskrá, svo og oddvita yfirkjörstjórnar.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum