Hoppa yfir valmynd

Menning og menntun

Eitt af verkefnum sendiráðsins er að hlúa að og efla menningar- og menntasamstarf Íslands og Bandaríkjanna. Sendiráðið getur haft milligöngu um íslenska listviðburði í Bandaríkjunum, tónleika, leiklist, myndlistarsýningar o.fl., en tekið er fram að ekki er um fjármögnun viðburða að ræða.

Sendiráðið aðstoðar íslenska námsmenn í Bandaríkjunum eftir föngum, sbr. þjónusta við Íslendinga, og vinnur að auknu mennta- og vísindasamstarfi milli ríkjanna. Að neðan er að finna tengla í vefsetur íslenskra menntastofnanna sem eru í samstarfi við Bandaríkin.

Vefsetur sem tengjast menningu Íslands og Bandaríkjanna

Vefsetur sem tengjast menntamálum Íslands ogBandaríkjanna

Stofnun Leifs Eiríkssonar

Stofnun Leifs Eiríkssonar, sem er í höndum stjórnar tilnefndri af Seðlabanka Íslands, ríkisstjórn Íslands og University of Virginia, var komið á fót til að fjármagna skipti á fræðimönnum milli Íslands og Bandaríkjanna.

Stofnuninni er eingöngu ætlað að sinna verkefnum í þágu góðgerða, bókmennta, menntunar og vísinda og veita styrki og fjárhagsaðstoð til að efla fræðimennsku og fræðilegar rannsóknir. Styrkþegar skulu vera fræðimenn frá Bandaríkjunum og Íslandi.

Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu Stofnunar Leifs Eiríkssonar.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum