Hoppa yfir valmynd

Kjördæmi og kjörstaðir

Landinu er skipt í sex kjördæmi og kjósendur neyta kosningarréttar síns eftir þeim reglum og með þeim skilyrðum er lög um kosningar til Alþingis setja.  

Landskjörstjórn hefur auglýst mörk Reykjavíkurkjördæmanna fyrir alþingiskosningar 25. september 2021, í samræmi við lög um kosningar til Alþingis.

Kort sem sýnir kjördæmaskipan í alþingiskosningum frá 2003

Kjörstaðir

Sveitarfélög auglýsa kjörstaði við kosningar til Alþingis. Kjörstaðir eru almennt opnir frá kl. 9 árdegis til kl. 22 að kvöldi. Þó geta kjörstjórnir ákveðið að byrja síðar og hætta fyrr. Dómsmálaráðuneytið safnar saman upplýsingum um kjörstaði og tengir í slíkar upplýsingar á vefsíðum sveitarfélaga eftir því sem þær berast, sjá neðst á síðu.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram hjá sýslumönnum hérlendis. Upplýsingar um embætti sýslumanna er hægt að nálgast hér:

Sýslumenn geta ákveðið að atkvæðagreiðsla skuli fara fram á aðalskrifstofu þeirra eða í útibúi. Þá getur sýslumaður ákveðið að atkvæðagreiðsla á aðsetri embættis fari fram á sérstökum kjörstað utan aðalskrifstofunnar, svo og að atkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stað í umdæmi hans. 

Kjósanda sem er til meðferðar á sjúkrahúsi eða vistmaður þar, eða er heimilismaður á dvalarheimili aldraðra eða stofnun fyrir fatlað fólk, er heimilt að greiða atkvæði þar. Með sama hætti fer um vistmenn í fangelsi. Slík atkvæðagreiðsla skal fara fram á þeim tíma sem kjörstjóri ákveður, á sjúkrahúsi sem næst kjördegi, að höfðu samráði við stjórn stofnunar. Hún má þó ekki fara fram fyrr en þremur vikum fyrir kjördag, þ.e. 4. september 2021.

Þá sjá sýslumenn um framkvæmd utankjörfundarkosninga í heimahúsum en kjósanda sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi nema hann eigi kost á að greiða atkvæði á stofnun, samanber framangreint. Ósk um að greiða atkvæði í heimahúsi skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns um hagi kjósandans. Slík atkvæðagreiðsla má þó ekki fara fram fyrr en þremur vikum fyrir kjördag. Ósk um atkvæðagreiðslu í heimahúsi verður að bera fram við hlutaðeigandi sýslumann eigi síðar en tveimur dögum fyrir kjördag. 

Erlendis skal atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fara fram á skrifstofu sendiráðs, á sendiræðisskrifstofu eða á skrifstofu kjörræðismanns samkvæmt nánari ákvörðun utanríkisráðuneytisins. Utanríkisráðuneytið getur og ákveðið að atkvæðagreiðsla fari fram á öðrum stöðum erlendis. Utanríkisráðuneytið annast afgreiðslu þeirra kjörgagna sem þurfa að berast kjörstjórum erlendis. 

Utanríkisráðuneytið auglýsir hvar og hvenær atkvæðagreiðsla getur farið fram erlendis.

Hægt er að nálgast upplýsingar á vefjum sveitarfélaga um kjörstaði þegar þær liggja fyrir:

Sjá einnig...

Síðast uppfært: 8.3.2023 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum