Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 25/2015

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík

                                                      

Miðvikudaginn 1. júlí 2015 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 25/2015:

 

Kæra A

á ákvörðun

Reykjavíkurborgar

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

 

A hefur með kæru, dags. 20. apríl 2015, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Reykjavíkurborgar, dags. 8. apríl 2015, á umsókn hans um styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu.

 

I. Málavextir og málsmeðferð

Kærandi sótti um styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu að fjárhæð 300.000 krónur hjá Reykjavíkurborg með umsókn, dags. 24. mars 2015. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 26. mars 2015, með þeim rökum að umsóknin samræmdist ekki reglum Reykjavíkurborgar. Kærandi áfrýjaði synjuninni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 8. apríl 2015 og samþykkti svohljóðandi bókun:

Velferðarráð staðfesti synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar um styrk að upphæð kr. 300.000.- þar sem eigi verður talið að aðstæður umsækjanda falli að skilyrðum þeim sem sett eru skv. 23. gr. reglna um fjárhagsaðstoð varðandi styrk til fyrirframgreiðslu/tryggingu húsaleigu.

Niðurstaða velferðarráðs var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 8. apríl 2015. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála 20. apríl 2015. Með bréfi, dags. 22. apríl 2015, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir greinargerð Reykjavíkurborgar þar sem fram kæmi meðal annars rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 27. apríl 2015. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 4. maí 2015, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

II. Málsástæður kæranda

Kærandi kveðst vera heimilislaus og dvelja á sjúkrahóteli vegna veikinda. Kærandi kveðst hafa leigt námsmannaíbúð síðastliðin tvö ár en þar sem hann hafi hætt í skóla hafi hann þurft að skila þeirri íbúð í byrjun apríl. Kærandi greinir frá veikindum sínum og kveðst hafa verið mikið frá vinnu vegna þeirra og því hafi laun hans lækkað mikið. Kærandi tekur fram að hann hafi ekkert stuðningsnet og fái enga aðstoð frá foreldrum sínum eða nánum vandamönnum. Kærandi tekur fram að hann hafi safnað upp skuldum vegna veikinda sinna og því fái hann ekki fyrirgreiðslu frá banka. Hann þurfi því aðstoð með fyrirframgreiðslu til að eiga möguleika á að finna sér heimili.

 

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er greint frá aðstæðum kæranda. Þegar hann hafi sótt um styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu hafi hann verið að leigja íbúð hjá Byggingarfélagi námsmanna en þurft að skila þeirri íbúð þar sem hann væri ekki lengur námsmaður. Kærandi hafi ekki verið kominn með nýtt húsnæði en mikið af launum hans fari í lyfjakostnað, rannsóknir og fleira. Það hafi verið mat velferðarráðs að skilyrði 23. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg hafi ekki verið uppfyllt þar sem kærandi hafi ekki þegið fjárhagsaðstoð til framfærslu mánuðinn sem sótt hafi verið um og mánuðinn þar á undan. Kærandi sé launþegi og tekjur hans hærri en fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Þá uppfylli kærandi ekki 2. mgr. 23. gr. reglnanna þar sem hann hafi ekki glímt við vímuefnavanda og/eða geðræna erfiðleika.

 

IV. Niðurstaða

Málskotsheimild kæranda er reist á 63. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Fyrir nefndinni liggja reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg frá 1. janúar 2011, með síðari breytingum. Í máli þessu er ágreiningur um það hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu.

Fjallað er um rétt til fjárhagsaðstoðar til þeirra sem eigi fá séð fyrir sjálfum sér, maka sínum og börnum yngri en 18 ára í IV. og VI. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Kærandi sótti um styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu að fjárhæð 300.000 krónur og var umsókn hans synjað á þeirri forsendu að hann hafi ekki uppfyllt skilyrði 23. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

Í 23. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er fjallað um styrk eða lán til fyrirframgreiðslu húsaleigu og til tryggingar húsaleigu. Í 1. mgr. ákvæðisins kemur fram að heimilt sé að veita þeim sem fengið hafa fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglunum í mánuðinum sem sótt er um og í mánuðinum á undan lán eða styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu. Í 2. mgr. 23. gr. kemur fram að heimilt sé að veita lán eða styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu til þeirra sem ekki uppfylli skilyrði 1. mgr. ef viðkomandi hafi til langs tíma glímt við vímuefnavanda og/eða geðræna erfiðleika auk þess að hafa jafnframt átt í margháttuðum húsnæðiserfiðleikum og miklum félagslegum erfiðleikum því fylgjandi.

Samkvæmt gögnum málsins naut kærandi ekki fjárhagsaðstoðar sér til framfærslu í mánuðinum sem hann sótti um styrkinn og í mánuðinum á undan líkt og gert er að skilyrði í 1. mgr. 23. gr. framangreindra reglna. Þá benda gögn málsins ekki til þess að kærandi uppfylli skilyrði 2. mgr. 23. gr. reglnanna. Að því virtu verður að telja að Reykjavíkurborg hafi verið heimilt að synja umsókn kæranda um styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu.

Almennt ber sveitarfélögum að gæta jafnræðis og samræmis við ákvörðun um fjárhagsaðstoð. Það er álit úrskurðarnefndarinnar að ekkert hafi komið fram um að mat Reykjavíkurborgar á aðstæðum kæranda hafi verið ómálefnalegt eða andstætt þeim reglum sem um það gilda. Með vísan til þessa ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun.

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Arnar Kristinsson og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

 

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 8. apríl 2015, um synjun á umsókn A um styrk til fyrirframgreiðslu húsaleigu er staðfest.

 

Bergþóra Ingólfsdóttir, formaður

Arnar Kristinsson

Gunnar Eydal



Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum