Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 26/2015

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík

                                                       

Miðvikudaginn 1. júlí 2015 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 26/2015:

 

Kæra A

á ákvörðun

Reykjavíkurborgar

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

 

A hefur með kæru, dags. 22. apríl 2015, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Reykjavíkurborgar frá 18. mars 2015 um undanþágu frá skilyrði c-liðar 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur.

 

I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 18. nóvember 2014, sótti kærandi um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur hjá Reykjavíkurborg. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 26. nóvember 2014, með þeim rökum að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði c-liðar 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík. Kærandi óskaði eftir undanþágu frá framangreindu skilyrði en var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 27. janúar 2015. Með bréfi, dags. 30. janúar 2015, áfrýjaði kærandi synjuninni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 11. mars 2015 og samþykkti svohljóðandi bókun:

Velferðarráð staðfestir synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar um undanþágu frá skilyrði c. liðar 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur.

Niðurstaða velferðarráðs var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 18. mars 2015. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála 22. apríl 2015. Með bréfi, dags. 24. apríl 2015, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir greinargerð Reykjavíkurborgar þar sem fram kæmi meðal annars rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 28. apríl 2015. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 4. maí 2015, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

II. Málsástæður kæranda

Kærandi hefur ekki komið neinum sjónarmiðum á framfæri í málinu.

 

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar vegna kærumálsins er greint frá aðstæðum kæranda. Í 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík séu sett fram tiltekin skilyrði í a–e-liðum sem umsækjandi þurfi að uppfylla til að umsóknin taki gildi. Í c-lið sé kveðið á um tekju- og eignamörk og séu eignamörkin 3.352.765 krónur og tekjumörk 4.695.058 krónur miðað við hjón, auk þess 561.269 krónur fyrir hvert barn á framfæri innan 20 ára. Tekjumörk séu miðuð við meðaltal tekna síðastliðin þrjú ár. Meðaltekjur kæranda síðastliðin þrjú ár hafi verið 3.955.689 krónur og því hafi hann ekki uppfyllt áðurnefnd tekjumörk, sbr. c-lið 4. gr. reglnanna. Í 5. gr. reglnanna sé kveðið á um undanþágu frá skilyrðum 4. gr. en heimilt sé samkvæmt b-lið að veita undanþágu frá lögheimili og tekjumörkum, byggða á faglegu mati, sé um mikla félagslega erfiðleika að ræða.  

Rétt sé að ítreka að umrætt ákvæði 5. gr. reglnanna sé heimildarákvæði og því ekki skylt að veita umræddar undanþágur. Þau viðmið hafi mótast í framkvæmd að til langvarandi og mikils félagslegs vanda teljist meðal annars félagsleg einangrun, takmörkuð félagsleg færni, framtaksleysi, ekkert stuðningsnet og sértækir erfiðleikar, svo sem háalvarleg veikindi sem hafi afgerandi áhrif á aðstæður viðkomandi eða meðferðarmál/barnaverndarmál. Kæranda hafi verið hafnað um undanþágu frá b-lið 5. gr. reglnanna þar sem mat starfsmanna þjónustumiðstöðvar hafi verið að ekki væri um að ræða mjög mikla félagslega erfiðleika, en aðstæður kæranda hafi verið metnar til tveggja stiga sem er nokkur félagslegur vandi. Skilyrði undanþágu sé að mál aðila sé metið til fjögurra stiga sem er verulegur félagslegur vandi. Kærandi hafi verið metinn til tveggja stiga þrátt fyrir að hafa þurft að skipta um vinnu vegna veikinda. Að mati velferðarráðs sé kærandi ekki frumkvæðislaus og veikindi hans uppfylli ekki skilyrði matsviðmiðsins í b-lið 5. gr. reglnanna, um að hafa afgerandi áhrif á aðstæður umsækjanda enda sé hann vinnufær þrátt fyrir veikindi sín. Jafnframt hafi kærandi átt góða æsku, sé vinamargur og búi hjá móður sinni og hafi því að mati velferðarráðs ekki uppfyllt skilyrði um félagslega einangrun, ekkert stuðningsnet eða takmarkaða félagslega færni. Kærandi hafi því verið metinn til tveggja stiga vegna veikinda og fjárhagsstöðu sinnar en hann þurfi að greiða einfalt meðlag með fjórum börnum. Einnig hafi verið litið til þess að heildartekjur kæranda á árinu 2014 hafi verið 4.142.177 krónur sem væri 25% yfir tekjumörkum einhleypinga skv. c-lið 4. gr. reglnanna.  

Með hliðsjón af framansögðu og með hliðsjón af jafnræðisreglu stjórnsýslulaga hafi velferðarráð talið að ekki hafi borið að veita kæranda undanþágu frá skilyrði c-liðar 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík.

 

IV. Niðurstaða

Málskotsheimild kæranda er reist á 16. gr. laga nr. 138/1997 um húsaleigubætur. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum XVII. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Fyrir nefndinni liggja reglur um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík frá 1. mars 2004, með síðari breytingum. Í máli þessu er ágreiningur um það hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur.

Umsókn kæranda var synjað á þeirri forsendu að skilyrði c-liðar 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík væri ekki uppfyllt.

Í 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík er að finna skilyrði fyrir því að umsókn verði metin gild og þarf umsækjandi að uppfylla öll skilyrði sem fram koma í a–e-liðum 1. mgr. ákvæðisins. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 4. gr. reglnanna voru tekjumörk fyrir hjón og sambúðarfólk, á þeim tíma sem umsókn kæranda var lögð fram, 4.558.309 krónur og auk þess 544.921 króna fyrir hvert barn á framfæri innan 20 ára. Samkvæmt c-lið eru tekjumörk miðuð við meðaltal tekna síðastliðin þrjú ár. Samkvæmt gögnum málsins voru meðaltekjur kæranda síðastliðin þrjú ár 3.955.689 krónur. Tekjur kæranda voru því yfir tekjumörkum c-liðar 1. mgr. 4. gr. reglnanna.

Í 5. gr. reglnanna er kveðið á um undanþágur frá skilyrðum 4. gr. um lögheimili og tekjuviðmið. Samkvæmt b-lið 1. mgr. 5. gr. er heimilt að veita undanþágu frá skilyrði 4. gr. um lögheimili og/eða tekjuviðmið sé umsækjandi samkvæmt faglegu mati ráðgjafa í mjög miklum félagslegum erfiðleikum, sbr. lið 5 c í matsviðmiði sem fylgir reglunum. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg hafa þau viðmið mótast í framkvæmd að til langvarandi og mikils félagslegs vanda samkvæmt lið 5 c í matsviðmiði teljist meðal annars félagsleg einangrun, takmörkuð félagsleg færni, framtaksleysi, ekkert stuðningsnet og sértækir erfiðleikar, svo sem háalvarleg veikindi sem hafi afgerandi áhrif á aðstæður viðkomandi eða meðferðarmál/barnaverndarmál. Félagslegar aðstæður kæranda voru metnar til tveggja stiga sem er nokkur félagslegur vandi en skilyrði fyrir undanþágu er að félagslegar aðstæður séu metnar til fjögurra stiga sem er mjög mikill félagslegur vandi. Reykjavíkurborg hefur vísað til þess að kærandi hafi átt góða æsku, sé vinamargur og búi hjá móður sinni og því uppfylli hann ekki skilyrði um félagslega einangrun, ekkert stuðningsnet eða takmarkaða félagslega færni. Að framangreindu virtu er það mat úrskurðarnefndarinnar að aðstæður kæranda leiði ekki til þess að honum verði veitt undanþága frá c-lið 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík.

Almennt ber sveitarfélögum að gæta jafnræðis og samræmis við ákvörðun um fjárhagsaðstoð. Það er álit úrskurðarnefndarinnar að ekkert hafi komið fram um að mat Reykjavíkurborgar á aðstæðum kæranda hafi verið ómálefnalegt eða andstætt þeim reglum sem um það gilda. Með vísan til þessa ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun Reykjavíkurborgar.

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Arnar Kristinsson og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

 

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 18. mars 2015, um synjun á umsókn A um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur er staðfest.

 

Bergþóra Ingólfsdóttir, formaður

Arnar Kristinsson

Gunnar Eydal

  


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum