Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A6%C3%B0ingar-%20og%20foreldraorlof

Mál nr. 95/2012

Fimmtudaginn 11. apríl 2013

 A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Jóna Björk Helgadóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 9. nóvember 2012 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 7. nóvember 2012. Kærður var útreikningur Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynntur var með bréfi, dags. 13. september 2012, um að mánaðarleg greiðsla til kæranda yrði X kr. á mánuði miðað við 100% orlof.

Með bréfi, dags. 12. nóvember 2012, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 22. nóvember 2012.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 27. nóvember 2012, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Engar frekari athugasemdir bárust. 

 

I. Sjónarmið kæranda.

Kærandi greinir frá því að hún óski eftir að fá undanþágu frá því tímabili sem fæðingarorlof sé reiknað. Kærandi hafi stundað fullt háskólanám við Háskóla Íslands síðastliðin þrjú ár og hafi útskrifast í júní 2012 með BS-gráðu. Kærandi hafi verið í 50% stöðu hjá B hf. með námi sínu og stundað 100% vinnu á sumrin. Strax eftir lokapróf hafi kærandi verið í 100% starfshlutfalli og muni snúa til baka í sömu stöðu að orlofi loknu. Kærandi óskar eftir því að miðað verði við þá fjóra mánuði sem hún hafi verið í fullu starfi í stað hins hefðbundna viðmiðunartímabils. Fæðingarorlofssjóður hafi hafnað slíkri undanþágu.

Kærandi hafi fengið þær upplýsingar hjá Fæðingarorlofssjóði að ekki væri unnt að sækja um fæðingarorlof bæði sem námsmaður og launþegi. Það hafi komið henni á óvart þar sem flestir námsmenn vinni með skóla auk þess sem námsmenn séu einnig sá hópur sem sé á barneignaaldri.

 

II. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði með umsókn, ódagsettri, í sex mánuði vegna barns hennar sem fæddist þann Y. september 2012.

Auk umsóknar kæranda hafi borist tilkynning um tilhögun fæðingarorlofs, dags. 9. júlí 2012, og launaseðlar frá Símanum hf. fyrir maí til júní 2012. Enn fremur hafi legið fyrir upplýsingar úr skrám ríkisskattstjóra og Þjóðskrá Íslands.

Kæranda hafi verið send greiðsluáætlun, dags. 13. september 2012, þar sem fram hafi komið að umsókn hennar um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hefði verið samþykkt og að mánaðarleg greiðsla yrði X kr. á mánuði miðað við 100% orlof.

Í 2. mgr. 13. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000 (ffl.), sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, a-lið 16. gr. laga nr. 120/2009 og 3. gr. laga nr. 136/2011, sé kveðið á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns, sbr. 2. mgr. 7. gr., í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram sé og miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn komi inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljast hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Þegar um sé að ræða 100% greiðslur á viðmiðunartímabili úr Fæðingarorlofssjóði, Atvinnuleysistryggingasjóði eða sjúkrasjóði stéttarfélags, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna sem foreldri átti rétt á skal taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur miðuðust við. Hafi foreldri hins vegar kosið að dreifa greiðslum skv. 3. málsl. hlutfallslega á lengri tíma samhliða hlutastarfi eða leyfi, launuðu eða ólaunuðu, skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hafi miðast við í sama hlutfalli og greiðslurnar hafi verið inntar af hendi á því viðmiðunartímabili sem um ræðir. Sama eigi við hafi foreldri kosið að dreifa greiðslum skv. 3. málsl. hlutfallslega á lengri tíma enda þótt foreldri hafi ekki verið í ráðningarsambandi á sama tíma. Aldrei skuli taka mið af hærri fjárhæð en sem nemi viðmiðunartekjum sem miða skuli við samkvæmt framangreindu enda þótt foreldri hafi fengið mismuninn milli greiðslna skv. 3. málsl. og meðaltals heildarlauna bættan samhliða greiðslunum.

Í 2. mgr. 13. gr. ffl. segi enn fremur að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a, án tillits til þess hvort laun skv. 2. málsl. eða reiknað endurgjald skv. 5. mgr. hafi komið til. Aldrei skuli þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna. Í athugasemdum við 8. gr. frumvarpsins er varð að lögum nr. 74/2008 komi fram að átt sé við almanaksmánuði.

Í 3. mgr. 15. gr. ffl. sé kveðið á um að útreikningar á greiðslum til foreldris í fæðingarorlofi skuli byggjast á upplýsingum sem Vinnumálastofnun afli um tekjur foreldra úr skattframtölum, staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá skattyfirvalda. Þar segi jafnframt að Vinnumálastofnun skuli leita staðfestingar hjá skattyfirvöldum á því að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá og tryggingagjaldsskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda vegna viðmiðunartímabila skv. 2. og 5. mgr. 13. gr. laganna.

Fæðingardagur barns kæranda var þann Y. september 2012 og því skuli, samkvæmt framangreindum lagaákvæðum, mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til kæranda reiknast sem 80% af meðaltali heildarlauna hennar að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram sé þá mánuði sem kærandi var á innlendum vinnumarkaði tímabilið mars 2011 til febrúar 2012 skv. 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. og 2. mgr. 13. gr. a ffl.

Samkvæmt upplýsingum frá ríkisskattstjóra hafi kærandi talið tekjur sínar fram í samræmi við það sem fram komi í staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra um tekjur hennar á framangreindu viðmiðunartímabili og telji Fæðingarorlofssjóður að þar með liggi fyrir staðfesting á að upplýsingar úr staðgreiðsluskrá hafi verið í samræmi við álagningu skattyfirvalda. Kærandi hafi verið á innlendum vinnumarkaði og þegið laun frá Símanum hf. allt viðmiðunartímabilið eða frá mars til september 2011. Því skuli allir þeir mánuðir hafðir með við útreikning á meðaltali heildarlauna kæranda, sbr. 2. mgr. 13. gr. ffl.

Í ffl. og reglugerð um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks sé ekki að finna neina heimild til þess að víkja frá 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 2. mgr. 13. gr. a ffl., við útreikning á meðaltali heildarlauna kæranda.

Með vísan til framangreinds telji Fæðingarorlofssjóður að bréf til kæranda, dags. 13. september 2012, beri með sér réttan útreikning á greiðslum til kæranda.

 

III. Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs sem tilkynnt var með bréfi, dags. 13. september 2012, um að mánaðarleg greiðsla til kæranda yrði X kr. á mánuði miðað við 100% fæðingarorlof.

Af hálfu kæranda er á því byggt að Fæðingarorlofssjóði beri að líta til þeirra mánaða sem hún hafi verið í fullri vinnu þó svo að þeir hafi verið utan hins hefðbundna viðmiðunartímabils skv. 2. mgr. 13. gr. ffl.

Í 2. mgr. 13. gr. ffl. segir að við útreikning mánaðarlegra greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til foreldris í fæðingarorlofi skuli miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn komi inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Auk þess segir að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabili sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a, án tillits til þess hvort laun skv. 2. málsl. eða reiknað endurgjald skv. 5. mgr. hafi komið til. Aldrei skuli þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.

Barn kæranda fæddist þann Y. september 2012. Viðmiðunartímabil skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. var því tímabilið mars 2011 til febrúar 2012. Hvorki í ffl. né reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, er að finna heimild til að víkja frá því viðmiðunartímabili sem ákvæði 2. mgr. 13. gr. ffl. mælir fyrir um. 

Hin kærða ákvörðun er því staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um mánaðarlegar greiðslur til A er staðfest.

 

Jóna Björk Helgadóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum