Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 53/2013

Þriðjudaginn 25. febrúar 2014


A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Haukur Guðmundsson hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 12. desember 2013 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 10. desember 2013. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með bréfi, dags. 30. október 2013, þar sem hún var krafin um endurgreiðslu hluta útborgaðrar fjárhæðar frá Fæðingarorlofssjóði.

Með bréfi, dags. 17. desember 2013, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 9. desember 2013.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 30. desember 2013, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Engar frekari athugasemdir bárust.

 

I. Málsatvik.

Kærandi eignaðist barn þann Y. júní 2013 og hóf töku fæðingarorlofs frá fæðingardegi. Ráðningarsamningur kæranda rann út þann 31. maí 2013. Kærandi fékk greitt ótekið orlof vegna starfslokanna þann 1. júlí 2013. Fæðingarorlofssjóður sendi kæranda greiðsluáskorun, dags. 30. október 2013, þar sem kærandi var krafin um endurgreiðslu hluta útborgaðrar fjárhæðar fyrir júní 2013 þar sem sjóðurinn leit svo á að framangreind greiðsla frá vinnuveitanda kæranda hafi verið svo há og þess eðlis að hún kæmi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. 

 

II. Sjónarmið kæranda.

Kærandi greinir frá því að þann 21. október 2013 hafi kæranda borist bréf vegna hugsanlegrar ofgreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði. Málið sé tilkomið vegna orlofs sem kærandi hafi fengið greitt fyrsta mánuðinn sem kærandi hafi verið í fæðingarorlofi. Kærandi hafi starfað á leikskóla en starfssamningur hennar hafi runnið út þann 31. maí 2013. Barn kæranda fæddist þann Y. júní 2013 og því hafi kærandi einungis fengið hálfan mánuð í fæðingarorlof. Þann 1. júlí 2013 hafi kærandi svo fengið greitt ótekið orlof vegna starfsloka frá fyrrum vinnuveitanda sínum. Kærandi hafi hvorki farið fram á greiðslu orlofsins né haft nokkuð um það að segja.

Eftir að kæranda hafði borist tilkynning Fæðingarorlofssjóðs um meðferð máls hafi kærandi haft samband við fyrrum yfirmann sinn sem hafi fengið launadeild fyrrum vinnuveitanda kæranda til að senda gögn til Fæðingarorlofssjóðs fyrir hönd kæranda.

Þann 30. október 2013 hafi kærandi svo fengið senda greiðsluáskorun frá Fæðingarorlofssjóði þar sem fram hafi komið að þrátt fyrir útskýringar og launaseðla sem vinnuveitandi kæranda hafi sent krefjist Fæðingarorlofssjóður að kærandi endurgreiði hluta útborgaðrar fjárhæðar fyrir júní 2013.

Kærandi hafi kynnt sér heimasíðu Fæðingarorlofssjóðs, þar á meðal „Spurt og svarað“ en hvergi fundið upplýsingar um reglur um orlofsgreiðslur. Þá vísi kærandi til sambærilegs máls frá 2011 þar sem úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála hafi ekki fallist á endurkröfu Fæðingarorlofssjóðs.

 

III. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að sjóðurinn hafi með bréfi til kæranda, dags. 21. október 2013, vakið athygli kæranda á því að stofnunin hafi verið með til meðferðar mál hennar vegna hugsanlegrar ofgreiðslu. Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK hefði kærandi verið að fá laun frá vinnuveitanda sínum á sama tíma og hún hafi þegið greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðli fyrir júní 2013 ásamt útskýringum frá vinnuveitanda og útskýringum og andmælum kæranda ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.

Skýringar hafi borist frá vinnuveitanda kæranda, dags. 28. október 2013, ásamt umbeðnum launaseðli. Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 30. október 2013, þar sem hún hafi verið krafin um endurgreiðslu hluta útborgaðrar fjárhæðar. Litið hafi verið svo á samkvæmt skrám RSK, fyrirhugaðri töku fæðingarorlofs með barni fæddu Y. júní 2013 og innsendum skýringum og launaseðli að kærandi hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði fyrir maí 2013 skv. 10. mgr. 13. gr. og 4. mgr. 33. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000 (ffl.), sbr. og 2. mgr. 15. gr. a ffl.

Samkvæmt 10. mgr. 13. gr. ffl. skuli greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó sé heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja megi til breytinga á störfum foreldris.

Ákvörðun í máli þessu hafi verið tekin eftir álit setts umboðsmanns Alþingis í máli nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013 og í samræmi við álitið og úrskurði úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála sem hafi verið kveðnir upp eftir álit setts umboðsmanns.

Með breytingarlögum nr. 136/20110 hafi komið inn svohljóðandi ákvæði í 4. mgr. 33. gr. ffl., sbr. 14. gr. laga nr. 136/2011: „Foreldri sem njóti orlofslauna eða greiðslna vegna starfsloka getur ekki nýtt sér rétt sinn til fæðingarstyrks eða greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum þessum á sama tímabili og þær greiðslur eiga við um.“ Lög nr. 136/20110 hafi verið samþykkt á Alþingi 17. september 2011 og hafi útgáfudagur þeirra í Stjórnartíðindum verið 30. sama mánaðar. Samkvæmt 16. gr. laganna taki ákvæði þeirra til foreldra barna sem hafi fæðst, séu ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur eftir gildistöku þeirra. Barn kæranda hafi fæðst eins og áður segir þann Y. júní 2013 og eigi ákvæðið því við um tilvik kæranda.

Í kæru kæranda sé vísað til eldri úrskurðar frá árinu 2011 vegna barns sem hafi fæðst á árinu 2010. Í samræmi við framangreint eigi hann ekki við við úrlausn þessa máls enda hafi það barn ekki verið fætt þegar lagaákvæðið hafi verið samþykkt.

Á viðmiðunartímabili kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. hafi viðmiðunarlaun hennar verið 183.032 kr. á mánuði en frá því að viðmiðunartímabili lauk og fram að fæðingu barnsins hafi þau hækkað í 254.826 kr. sem miðað hafi verið við. Þannig hafi verið tekið mið af hækkuðum launum kæranda henni til hagsbóta við útreikning á hugsanlegri ofgreiðslu skv. 10. mgr. 13. gr. og 4. mgr. 44. gr. ffl. Enga heimild sé að finna í ffl. eða í reglugerð um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, nr. 1218/2008, að taka tillit til launabreytinga foreldris eftir fæðingardag barns við mat á hugsanlegri ofgreiðslu.

Í júní 2013 hafi kærandi þegið 83.463 kr. úr Fæðingarorlofssjóði og hefði henni því verið heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem námu mismuni á 254.823 kr. og fjárhæð greiðslu Fæðingarorlofssjóðs eða 171.360 kr. án þess að það kæmi til lækkunar á greiðslum úr sjóðnum, sbr. 2. málsl. 10. mgr. 13. gr. ffl.

Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK fyrir júní 2013 hafi kærandi þegið 239.877 kr. í laun. Á launaseðli komi fram að kærandi hafi fengið greidda orlofsuppbót að fjárhæð 29.000 kr. í mánuðinum sem hafi láðst að undanskilja við útreikning á ofgreiðslu, sbr. heimild til þess í 4. málsl. 10. mgr. 13. gr. ffl. Þannig hefði verið rétt að miða við 210.877 kr. í stað 239.877 kr. við útreikning á ofgreiðslu kæranda. Hún hafi því fengið 39.517 kr. hærri greiðslu frá vinnuveitanda sínum en hún hafi mátt og því beri kæranda að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir júní 2013 hafi því með réttu numið 23.018 kr. að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda í stað 40.068 kr. sem gerð hafi verið krafa um á greiðsluáskorun, dags. 30. október 2013.  

Þannig liggi ljóst fyrir að sú greiðsla sem kærandi hafi fengið frá sínum vinnuveitanda í júní 2013 sé uppgjör á orlofi eða orlofslaun. Ljóst sé að útborgun ótekins orlofs teljist til réttinda sem séu ósamrýmanleg fæðingarorlofsgreiðslum skv. 4. mgr. 33. gr. ffl. og úrskurði úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála í máli nr. 64/2012.

Í úrskurði úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála í máli nr. 64/2012, sem hafi verið kveðinn upp eftir álit setts umboðsmanns Alþingis í máli nr. 7022/2012, hafi reynt á sambærileg álitaefni og í þessu máli. Í úrskurðinum hafi nefndin fjallað um hvernig túlka ætti ákvæði 4. mgr. 33. gr. ffl. um orlofslaun og greiðslur vegna starfsloka um sama tímabil og þær greiðslur eigi við um sérstaklega með hliðsjón af orðalagi 10. mgr. 13. gr. ffl. um greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi.

Nefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið unnt að fallast á að í ákvæðunum hafi verið að vísa til þess tímabils þegar unnið sé til orlofslauna. Launþegar vinni almennt til orlofslauna allt árið, en þær greiðslur sem þeir ávinna sér séu ætlaðar til orlofstöku yfir sumarmánuði, eða eftir atvikum til dæmis við starfslok.

Af framangreindu verði því að teljast ljóst að greiðslan eigi við um það tímabil sem kærandi hafi verið í fæðingarorlofi og ekki verði hægt að dreifa henni á annað eða lengra tímabil en greiðslutímabilið sjálft, þ.e. júní 2013.

Í kæru kæranda komi fram að kærandi telji sig hafa kynnt sér heimasíðu Fæðingarorlofssjóðs og ekki rekist á það að orlof frá vinnuveitanda gæti haft áhrif á greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Á heimasíðu sjóðsins sé að finna ítarlega umfjöllun um eftirlit og ofgreiðslur til að mynda í sambærilegum tilvikum og séu í máli kæranda. Þessar upplýsingar hafi verið á heimasíðunni í langan tíma og hafi verið til staðar á þeim tíma sem barn kæranda hafi fæðst.

Samkvæmt öllu framangreindu hafi Fæðingarorlofssjóður því ofgreitt kæranda 23.018 kr. útborgað sem gerð sé krafa um í stað 40.068 kr. sem gerð hafi verið krafa um í greiðsluáskorun, dags. 30. október 2013.

 

IV. Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar barns hinn Y. júní 2013.

Í hinni kærðu ákvörðun er á því byggt að kærandi hafi þegið greiðslur frá vinnuveitanda sínum í júní 2013 á sama tíma og hún þáði greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði. Séu þessar greiðslur frá vinnuveitanda svo háar og þess eðlis að þær leiði til lækkunar á rétti til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.

Kærandi byggir á því að þar sem umrædd greiðsla hafi verið útborgun ótekins orlofs við starfslok skuli hún ekki koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði og að kærandi hafi ekki haft nokkuð með umrædda greiðslu að gera og því skuli hún ekki hafa áhrif á rétt hennar til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.

Barn kæranda er eins og fyrr greinir fætt Y. júní 2013. Viðmiðunartímabil útreiknings meðaltals heildarlauna kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. er því tímabilið frá desember 2011 til nóvember 2012. Í greiðsluáætlun, dags. 2. júlí 2013, kemur fram að meðaltekjur kæranda á viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. voru alls 183.032 kr. og greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði miðað við 100% fæðingarorlof væri samkvæmt því 146.426 kr. Af útreikningi sem fylgdi greiðsluáskorun frá 15. október 2013 má hins vegar sjá að frá því að viðmiðunartímabili meðaltals heildarlauna kæranda lauk og fram til fæðingar barnsins hækkuðu laun kæranda í 254.826 kr. sem miðað hafi verið við við útreikning á endurgreiðslukröfu Fæðingarorlofssjóðs í samræmi við heimild í 10. mgr. 13. gr. ffl. Er það kæranda til hagsbóta.

Fæðingarorlofssjóður hefur í ákvörðun sinni miðað við að orlofsgreiðslan eigi við um júnímánuð, en starfslok kæranda urðu um mánaðamótin maí/júní, enda þótt greiðslan hafi ekki komið til framkvæmda fyrr en um mánaðamótin júní/júlí. Er það í samræmi við aðstæður og kæranda til hagsbóta. Fæst ekki séð að orlofslaunin geti talist vera vegna nokkurs annars tímabils sem væri kæranda hagfelldara.

Líkt og áður segir er rétt að mati úrskurðarnefndar að miða endurgreiðslukröfu á hendur kæranda við meðaltals heildarlaun að fjárhæð 254.823 kr. Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði að fjárhæð 83.463 kr. í júní 2013 og var henni því heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sínum að fjárhæð 171.360 kr. í júní 2013 án þess að það kæmi til lækkunar á greiðslum úr sjóðnum. Er þessi túlkun í samræmi við álit umboðsmanns Alþingis í málinu nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013.

Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greitt uppgjör vegna ótekins orlofs frá vinnuveitanda sínum í júní 2013 að fjárhæð 210.877 kr., en ljóst er að útborgun ótekins orlofs til réttinda sem eru ósamrýmanleg fæðingarorlofsgreiðslum skv. 4. mgr. 33. gr. ffl.

Það er því ljóst að kærandi þáði hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en henni var heimilt fyrir júní 2013. Verður niðurstaða Fæðingarorlofssjóðs um skyldu kæranda til endurgreiðslu fyrir þann mánuð því staðfest.

Af gögnum málsins má sjá að við útreikning á endurgreiðslukröfu Fæðingarorlofssjóðs á hendur kæranda var orlofsuppbót að fjárhæð 29.000 kr. látin koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Heimilt er að undanskilja orlofsuppbót við útreikning á ofgreiðslu, sbr. 4. málsl. 10. mgr. 13. gr. ffl., og hefur Fæðingarorlofssjóður í málatilbúnaði sínum fallist á að lækka endurgreiðslukröfu sína í 23.018 kr. vegna þessa.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Kærandi, A skal endurgreiða Fæðingarorlofssjóði 23.018 kr. vegna ofgreidds fæðingarorlofs.

 

Haukur Guðmundsson

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum