Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 35/2015

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík

                                                     

Miðvikudaginn 26. ágúst 2015 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 35/2015:

 

Kæra A

á ákvörðun

Reykjavíkurborgar

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

 

A hefur með kæru, dags. 16. júní 2015, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Reykjavíkurborgar frá 19. mars 2015 um undanþágu frá skilyrði b- og c-liðar 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur.

 

I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 29. janúar 2015, sótti kærandi um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur hjá Reykjavíkurborg. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 25. febrúar 2015, með þeim rökum að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði b-liðar 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík. Kærandi óskaði eftir undanþágu frá framangreindu skilyrði en var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 25. febrúar 2015. Kærandi áfrýjaði synjuninni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 18. mars 2015 og samþykkti svohljóðandi bókun:

Velferðarráð staðfestir synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar um undanþágu frá skilyrðum b. og c. liðar 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur.

Niðurstaða velferðarráðs var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 19. mars 2015. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála 22. júní 2015. Með bréfi, dags. 23. júní 2015, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir greinargerð Reykjavíkurborgar þar sem fram kæmi meðal annars rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 7. júlí 2015. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 9. júlí 2015, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

II. Málsástæður kæranda

Kærandi hefur ekki komið neinum sjónarmiðum á framfæri í málinu.

 

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar vegna málsins er greint frá aðstæðum kæranda. Vísað er til þess að á grundvelli 45. og 46. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga hafi Reykjavíkurborg sett sér reglur um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík. Í b-lið 4. gr. reglnanna komi fram að umsækjandi skuli eiga lögheimili í Reykjavík þegar sótt sé um og að minnsta kosti síðustu þrjú árin samfleytt áður en umsókn hafi borist. Í c-lið 4. gr. reglnanna sé kveðið á um tekju- og eignamörk og séu eignamörkin 4.675.115 krónur og tekjumörkin 3.352.765 krónur miðað við einhleyping. Tekjumörk séu miðuð við meðaltal tekna síðastliðin þrjú ár. Tekjur kæranda hafi verið 3.889.969 krónur að meðaltali síðastliðin þrjú ár og uppfylli kærandi því ekki tekjumörk c-liðar 4. gr. reglnanna.

Í 5. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík sé kveðið á um undanþágu frá skilyrðum 4. gr. reglnanna. Í a-lið 5. gr. reglnanna segi að heimilt sé að veita undanþágu frá skilyrðum 4. gr. um lögheimili hafi umsækjandi búið í Reykjavík stóran hluta ævi sinnar en flutt tímabundið úr sveitarfélaginu vegna húsnæðisvanda, náms eða vinnu. Kærandi hafi búið í Reykjavík á árunum 1948 til 1968, 1983 til 1992 og hafi frá 1. desember 2014 til dagsins í dag búið í Reykjavík. Því megi líta svo á að kærandi hafi búið stóran hluta ævi sinnar í Reykjavík. Hins vegar sé ekki litið svo á að kærandi hafi flutt tímabundið úr sveitarfélaginu vegna húsnæðisvanda, náms eða vinnu. Því sé ekki unnt að veita kæranda undanþágu frá skilyrðum b-liðar 4. gr. á þeim grundvelli. Þá sé skv. b-lið 5. gr. heimilt að veita undanþágu frá lögheimili og/eða tekjuviðmiði ef umsækjandi sé samkvæmt faglegu mati ráðgjafa í mjög miklum félagslegum erfiðleikum. Félagslegar aðstæður kæranda hafi ekki verið metnar til neinna stiga þar sem hún eigi ekki við mikla fjárhagsörðugleika að stríða, glími hvorki við langvarandi atvinnuleysi né hafi lítið stuðningsnet. Því síður falli kærandi undir að vera félagslega einangruð, með takmarkaða félagslega færni eða framtakslaus. Kærandi eigi ekki við sértæka erfiðleika að stríða, svo sem háalvarleg veikindi sem hafi afgerandi áhrif á aðstæður viðkomandi. Þá sé kærandi ekki að annast ættingja sem þarfnist stuðnings vegna sérþarfa og mál hennar sé ekki unnið sem meðferðarmál/barnaverndarmál. Því sé ekki unnt að veita kæranda undanþágu frá skilyrðum b- og c-liðar 4. gr. á þessum grundvelli. Einnig hafi verið litið til þess að heildartekjur kæranda á árinu 2014 hafi verið 4.370.802 krónur sem séu 30% yfir tekjumörkum einhleypinga skv. c-lið 4. gr. reglnanna og hafi tekjur kæranda því farið hækkandi.

Með hliðsjón af öllu framansögðu hafi velferðarráð ekki talið unnt að veita kæranda undanþágu frá skilyrðum b- eða c-liðar 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík. Velferðarráði beri að fara að þeim reglum sem í gildi séu varðandi félagslegt leiguhúsnæði í Reykjavík auk þess sem gæta beri jafnræðis í afgreiðslum á erindum íbúa borgarinnar.

 

IV. Niðurstaða

Málskotsheimild kæranda er reist á 16. gr. laga nr. 138/1997 um húsaleigubætur. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum XVII. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Fyrir nefndinni liggja reglur um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík frá 1. mars 2004, með síðari breytingum. Í máli þessu er ágreiningur um það hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur.

Umsókn kæranda var synjað á þeirri forsendu að skilyrði b- og c-liðar 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík væru ekki uppfyllt. Þá taldi Reykjavíkurborg að kærandi hafi ekki uppfyllt undanþáguákvæði 5. gr. reglnanna.

Í 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík er að finna skilyrði fyrir því að umsókn verði metin gild og þarf umsækjandi að uppfylla öll skilyrði sem fram koma í a–e-liðum 1. mgr. ákvæðisins. Í b-lið 4. gr. framangreindra reglna Reykjavíkurborgar er gert að skilyrði að umsækjandi eigi lögheimili í Reykjavík þegar sótt er um og a.m.k. þrjú árin samfleytt áður en umsókn berst. Samkvæmt upplýsingum úr þjóðskrá hefur kærandi búið í Reykjavík frá 1. desember 2014 og því ljóst að kærandi átti ekki lögheimili í Reykjavík síðustu þrjú ár samfleytt áður en umsókn um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur barst Reykjavíkurborg. Í c-lið 4. gr. reglnanna er kveðið á um tekju- og eignamörk og eru eignamörkin 4.675.115 krónur og tekjumörkin 3.352.765 krónur miðað við einhleyping. Samkvæmt c-lið eru tekjumörk miðuð við meðaltal tekna síðastliðin þrjú ár. Samkvæmt gögnum málsins voru meðaltekjur kæranda síðastliðin þrjú ár 3.889.969 krónur. Tekjur kæranda voru því yfir tekjumörkum c-liðar 1. mgr. 4. gr. reglnanna.

Í 5. gr. reglnanna er kveðið á um undanþágur frá skilyrðum 4. gr. um lögheimili og tekjuviðmið. Á grundvelli a-liðar 5. gr. reglnanna er heimilt að veita undanþágu frá lögheimili hafi umsækjandi búið í Reykjavík stóran hluta ævi sinnar en flutt tímabundið úr sveitarfélaginu vegna húsnæðisvanda, náms eða vinnu. Kærandi bjó í Reykjavík á árunum 1948 til 1968 og 1983 til 1992 og hefur því búið stóran hluta ævi sinnar í Reykjavík en ekki verður séð að kærandi hafi flutt tímabundið úr sveitarfélaginu vegna húsnæðisvanda, náms eða vinnu. Þá er á grundvelli b-liðar 1. mgr. 5. gr. reglnanna heimilt að veita undanþágu frá skilyrði 4. gr. um lögheimili og/eða tekjuviðmið sé umsækjandi samkvæmt faglegu mati ráðgjafa í mjög miklum félagslegum erfiðleikum, sbr. lið 5 c í matsviðmiði sem fylgir reglunum. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg hafa þau viðmið mótast í framkvæmd að til langvarandi og mikils félagslegs vanda samkvæmt lið 5 c í matsviðmiði teljist meðal annars félagsleg einangrun, takmörkuð félagsleg færni, framtaksleysi, ekkert stuðningsnet og sértækir erfiðleikar, svo sem háalvarleg veikindi sem hafi afgerandi áhrif á aðstæður viðkomandi eða meðferðarmál/barnaverndarmál. Félagslegar aðstæður kæranda voru ekki metnar til neinna stiga en skilyrði fyrir undanþágu er að félagslegar aðstæður séu metnar til fjögurra stiga sem er mjög mikill félagslegur vandi. Reykjavíkurborg hefur vísað til þess að kærandi eigi ekki við miklar fjárhagsörðugleika að stríða, glímir hvorki við langvarandi atvinnuleysi né hafi lítið stuðningsnet. Hún sé ekki félagslega einangruð, ekki með takmarkaða félagslega færni né framtakslaus. Að framangreindu virtu er það mat úrskurðarnefndarinnar að aðstæður kæranda leiði ekki til þess að henni verði veitt undanþága frá b- og c-lið 4. gr. reglna um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur.

Almennt ber sveitarfélögum að gæta jafnræðis og samræmis við ákvörðun um fjárhagsaðstoð. Það er álit úrskurðarnefndarinnar að ekkert hafi komið fram um að mat Reykjavíkurborgar á aðstæðum kæranda hafi verið ómálefnalegt eða andstætt þeim reglum sem um það gilda. Með vísan til þessa ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun Reykjavíkurborgar.

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Arnar Kristinsson og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.

  

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

 

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 19. mars 2015, um synjun á umsókn A um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur er staðfest.

 

Bergþóra Ingólfsdóttir, formaður

Arnar Kristinsson

Gunnar Eydal

  


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum